Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Miðvikudagur, 17. júní 2009
Til hamingju með þjóðhátíðardaginn íslendingar
Nú fer í hönd ný sjálfstæðisbarátta. Barátta okkar sem afneitum skuldbindinga ríkisstjórnarinnar til þegna landsins. Skuldbindingar með skipunum um að þeir sem hafa á engvan hátt tekið þátt í fjármálasukki eigi að líða fyrir það. Við; sem tókum ekki þátt í þessu borgum ekki fyrir þá sem settu þjóðina í þessa stöðu! Við almenningur í landinu sem er að vinna við okkar venjulegu störf eigum ekki að líða fyrir gjörðir annara! Það er alveg á hreinu!
Við tökum heldur ekki þátt í að skuldbinda Ísland inn í bandalag þar sem við munum alltaf þurfa að fá leyfi ef við ætlum að gera eitthvað (tildæmis í sjávarútvegnum). Samband sem við munum hafa lítil sem engin áhrif inni.
Áfram Ísland
Endurreisum landið án stórra
skuldbindinga!
Gerum hlutina sjálfir, frjálsir!
"Við látum enga yfir okkur ráða
þótt ýmsir vilji stjórna okkur bæði ljóst og leynt."
Það er kominn 17. júní | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 17. júní 2009
Til hamingju með daginn allir þeir íslendingar sem eru sannir íslendingar!
Guð minn góður. Að þessari manneskju skuli detta það í hug að segja þessi orð: heyjum nýja sjálfstæðisbaráttu osfrv.. Manneskja í flokk þeirra sem ætla sér að fórna sjálfstæði íslendinga.
Að vissu leiti eru þó þessi orð rétt sögð því að Sjálfstæðisbarátta íslendinga er fyrir alvöru að byrja nú á næstunni. Baratta sem sannir íslendingar skulum vinna svo um munar! Það verður sko alvöru barátta. Á milli þeirra sem vilja fórna sjálfstæði íslendinga og þeirra sem vilja halda Íslandi utan bandalaga, þeirra sem vilja fyrir alvöru:
Áfram Ísland!
Okkar Ísland
almennings í landinu. Þeirra sem munu aldrei taka þátt í að fórna sjálfstæði íslendinga! Hins sanna íslendings sem mun aldrei velja inngöngu í ESB!
Eru hugmyndir í "Okkar Ísland" óraunhæfar? Eða væri hægt að gera eitthvað við þær og þróa áfram? Verið er að setja "Okkar Ísland" í 38 síðna bækling sem hægt væri að fá sent. Möguleiki væri að panta með því að setja nafn og heimili á netfangið: gudni@simnet.is
______________________ "Okkar Ísland" ________________
Hér er 38 blaðsíðna skjal sem er með grunnhugmyndir leikmanns um stjórnsýslu og viðréttingu landsins úr kreppunni.
Ath. "Okkar Ísland" byggist á því að íslendingar taki á málum sínum sjálfir!
Hér er 1.03 af "Okkar Ísland" skjalinu í Word .doc (skjalið í heild með viðbætum og nýjum hugmyndum á réttum stað)
http://www.mediafire.com/?2yego20ndmz
_________________________________________________
Heyjum á ný sjálfstæðisbaráttu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt 20.6.2009 kl. 00:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 11. júní 2009
Hér er staka ein, nokkuð góð:-)
Þessi hefði átt að verða til fyrr í vikunni en varð bara til áðan
Margt er nú í kreppunni óvart gert
og jafnvel með bensínið líka
hvað gerist ef eftirlit er hert
hjá Olíufélögum ríkra?
Eru hugmyndir í "Okkar Ísland" óraunhæfar? Eða væri hægt að gera eitthvað við þær og þróa áfram? Verið er að setja "Okkar Ísland" í 38 síðna bækling sem hægt væri að fá sent. Möguleiki væri að panta með því að setja nafn og heimili á netfangið: gudni@simnet.is
______________________ "Okkar Ísland" ________________
Hér er 38 blaðsíðna skjal sem er með grunnhugmyndir leikmanns um stjórnsýslu og viðréttingu landsins úr kreppunni.
Ath. "Okkar Ísland" byggist á því að íslendingar taki á málum sínum sjálfir!
Hér er 1.03 af "Okkar Ísland" skjalinu í Word .doc (skjalið í heild með viðbætum og nýjum hugmyndum á réttum stað)
http://www.mediafire.com/?ndlrvyyzjyn
Hér er 1.03 af "Okkar Ísland" skjalinu í nýrra Word .docx skrá (skjalið í heild með viðbætum og nýjum hugmyndum á réttum stað)
http://www.mediafire.com/?2yego20ndmz
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 11. júní 2009
Ein lítil staka til gamans
Eins og þeir vita sem rata hér inn á Bloggið mitt þá dettur það stundum í mig að setja hér inn og búa til stökur. Hér er ein sem varð til hjá mér í morgun
Með Veltukort ofan í vasanum
valta ég yfir heiminn
á út -völdum degi í verslunarklasanum
versla ég ófeiminn
_______________________ Okkar Ísland __________________
Hér er 37 blaðsíðna skjal sem er með grunnhugmyndir leikmanns um stjórnsýslu og viðréttingu landsins úr kreppunni.
Ath. "Okkar Ísland" byggist á því að íslendingar taki á málum sínum sjálfir!
Hér er 1.03 af "Okkar Ísland" skjalinu í Word .doc (skjalið í heild með viðbætum og nýjum hugmyndum á réttum stað)
http://www.mediafire.com/?ndlrvyyzjyn
Hér er 1.03 af "Okkar Ísland" skjalinu í nýrra Word .docx skrá (skjalið í heild með viðbætum og nýjum hugmyndum á réttum stað)
http://www.mediafire.com/?2yego20ndmz
_________________________________________________________________
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Okkar Ísland skjal smá leiðrétting
Í fyrsta innleggi skjalsins lenti smá kafli inn á öfugum stað. Leiðrétting verður sett inn í nýju skjali: með sama heiti, um klukkan 21.00 í kvöld.
Hér er það sem á við: Bls. 27 ef skoðað er í Word:
C) Aðrar aðgerðir
Dæmi: Ef fyrirtæki á 50% milljónir í Höfðustól þá er ekki hægt..................
flytst upp í lið: 5. Bankar mega ekki
en lenti óvart undir lið 7.
Á næstunni kemur inn svo nánari útlistun í nýrri útgáfu skjalsins hversvegna? með: í kaup og sölu íbúða að það þurfi að vera íbúðalánasjóður. Ásamt fleiri útskýringum........ á hugmyndum.
Það verður því næst liður: 1.02 Okkar Island.doc
Þannig mun skjalið taka viðbætur sem verða settar í fyrstunni neðst í hverja nýja útgáfu en síðan sett inn í sjálft skjalið (m.a. vegna efnisyfirlits).
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. júní 2009
"Okkar Ísland" fullbúið skjal til að ná í á netinu sem er 37 blaðsíður
Okkar Ísland hér er skjal sem kynnir nýja stjórnsýsluhugmynd með ýmsum hugmyndum. Þar á meðal tillögum um viðréttingu á fjármálum Íslands.
Þetta er skjal frá mér með hugmyndum sem ég hef fengið sjálfur og að langmestu komnar úr eigin huga, utan örfárra undantekninga þar sem hugmynd hefur kveiknað í framhaldi af einhverju sem hefur verið skrifað á netinu.
Okkar Ísland er skjal frá leikmanni með hugmyndir sem hægt væri að skoða og fara vel yfir. Athuga þannig vel hvort þær geti virkað með smá tilfæringum eða einhverjum breytingum.
Okkar Ísland kann að virðast vera nær ómögulegt eða óraunhæft. Þegar að ég setti stjórnsýslu hluta hugmyndarinnar fyrst fram þá virtist svo vera! En nú þegar að á lengra dregur þá kemur betur í ljós að hugmyndin um skiptinguna og færslu stjórnunar til fólksins sé ekki svo vitlaus eftir allt saman og einmitt vegna þess hvað er á undan gengið í þjóðfélaginu.
Það dregur svo sannarlega því úr óraunhæfni hennar og kannski með tímanum hægt að nota hana (sem fljótast) fyrir okkur íslendinga að fara eftir.
Skjalið er ókeypis. Ætlaunin er þó að prenta það út eitthvað í bæklings formi.
Hér er fyrsta útgáfa af skjalinu "Okkar Ísland" í heild sinni.
nr. 1.01
Fyrsta skjalið er pínu hrátt ennþá en lagfæringar (aðallega prófarkalestur) og viðbætur koma inn í nýju skjali. Nýjar útgáfur eru settar inn á sama stað. Best er að velja Save eftir að velja Start Download i þar til gerðum glugga.
Þá eru viðbætur settar inn með: *nýjum lit á letri, eða þessum lit* með stjörnu fyrir framan)
Það vantar tildæmis dálítið inn í skrána um ESB málin!
************************
"Okkar Ísland"
Hér er 1.01 Okkar Ísland.doc
sem er Word97-2003 skrá
http://www.mediafire.com/?nbmwdnzj2ynHér er 1.01 Okkar Ísland.docx
sem er nýja Word XP útgáfa af skjalinu
http://www.mediafire.com/?yzzmtnm5r32
Ætlunin er að setja skjalið líka inn á Facebook. Reikna með því á morgun.
Vinir og fjölskylda | Breytt 10.6.2009 kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 29. maí 2009
Hjálp óskast!
Fjárlagahalli upp á 170 milljarða og það eina sem þessi Ríkisstjórn ætlar að gera er að auka skatta á eldsneyti, tóbak og áfengi. Aðgerðir sem gefa skít á priki og með þeim væru þeir heila öld að ná niður hallanum! Hvað á fleira að gera? Svo virðast sem allar þeirra aðgerðir verði til að auka á erfiðleika láglaunafjölskyldna.
Og allt sem þetta kostar okkur? Er ekki nú erfiðara að taka af verðtrygginguna eftir þetta? Málið er að það þurfti að nær núllstilla vextina og taka af verðtrygginguna áður enn að farið skipulega í margar samræmdar aðgerðir sem í alvöru takast á við vandann.
Verðtryggingin er flöskuháls!
Verðtrygginguna burt strax áður en að einhverjar aðgerðir eru framkvæmdar því það er alltaf betur og betur að koma í ljós hversu mikil áhrif hún hefur á allar aðgerðir! Sama hvað það kostar því fyrr er ekkert af viti hægt að gera. 200 þúsund krónur aukakosnaður fyrir fjölskyildur í landinu? Hvar á fólk að taka af og minnka við sig til að ná upp í þetta? Hvernig á fólk að geta rekið bíl?
Einn stóran pakka! með allskonar aðgerðir hefði átt að setja og setja í framkvæmd eins fljótt og auðið væri! Ýmsar stórar og smáar aðgerðir því margt smátt gerir saman eitt stórt til framtíðar. Menn verða að átta sig á að þegar að eitthvað gott fer í gang þáeykst virði þess og það hleður upp á sig. Ef einhver góð aðgerð fer af stað þá eykst hún og magnast upp, hleðst uppá sig.
Eins er með reiði fólks. Það hefur kraumað undir niðri en nú mun hú magnast fyrir alvöru.
Það er stutt eftir að líftíma þessarar stjórnar.Íslendingar þurfa að fara að takast á við vandann sjálfir því stjórnmálamenn virðast hvergi geta tekið á neinu að viti!
Öll þolinmæði er svo sannarlega að bresta!
Bensínið aldrei dýrara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 1. maí 2009
Til hamingju með daginn verkamenn
Ég óska öllum verkamönnum til hamingju með daginn í dag
1. Mai verkalýðsdaginn!
Laugardagur, 4. apríl 2009
Enn um Stjórnlagaþingshluta frumvarps Ríksstjórnar
Skipun áheyrnarfulltrúa.
> Forsætisnefnd stjórnlagaþings skipar allt að 20 fulltrúa samkvæmt tilnefningum almannasamtaka, hagsmunasamtaka og stjórnmálasamtaka til setu í hlutaðeigandi starfsnefndum stjórnlagaþings með tillögurétti og málfrelsi eftir nánari reglum í fundarsköpum þingsins.
Eingöngu kjörnir fulltrúar Stjórnlagaþings eiga að sitja þingið. Engvir aðrir! Þetta er mjög miklvægt atriði, m.a. vegna p.s.s.s. factorsins og áhrifagildi samtaka á kjörna fulltrúa þingsins. Þetta bíður upp á þann möguleika að versla með mál inni á þinginu á einhvern hátt. Þetta bíður upp á að stjórnmálasamtök geti komið sterkt að málum sem væru rædd á þinginu. Meðal annars að vera í nánum samskiptum við þær persónur sem eru annaðhvort fylgjandi viðkomandi eða kýs viðkomandi stjórnmálasamtökum eða hagsmunasamtaka.
22. gr.
Umsögn Alþingis
>Áður en stjórnlagaþing hefur samþykkt frumvarp til nýrrar stjórnarskrár skal það sent Alþingi til umsagnar. Alþingi skal veita stjórnlagaþingi umsögn sína innan tveggja mánaða.
Til hvers? Á ekki fólkið að endurskrifa stjórnarskrána? Alþingi á hvergi að koma að þessum málum. Ekki á neinum stigum þess!
Frumvarpi vísað aftur til meðferðar.
> Þegar stjórnlagaþingið hefur samþykkt frumvarp til stjórnarskipunarlaga skal það á ný sent Alþingi og getur það innan eins mánaðar ákveðið með rökstuddri tillögu að vísa frumvarpi aftur til meðferðar stjórnlagaþings. Skal þá taka frumvarpið aftur til meðferðar þar með hliðsjón af rökstuddri tillögu Alþingis. Þarf þá 2/3 hluta fulltrúa á stjórnlagaþingi að samþykkja frumvarpið, nema fallist sé á rökstudda tillögu Alþingis um breytingar á frumvarpinu og þarf þá aðeins einfaldan meiri hluta. Náist slíkt samþykki skal frumvarpið lagt í þjóðaratkvæðagreiðslu skv. 24. gr. en ella telst það fellt.
Berist stjórnlagaþingi engin umsögn frá Alþingi eftir samþykkt frumvarpsins, skv. 1. mgr. skal frumvarpið lagt í þjóðaratkvæðagreiðslu skv. 24. gr.
Það eina sem stjórnlagaþingið ætti að gera er að senda útkomu stjórnlagaþingsins til Ríkisstjórnar eða Forseta Íslands jafnvel, að framkvæma sem lög fólksins í landinu og það án athugasemda!
Íslendingar! Endursemjum Stjórnarskrá Íslands án viðkomu stjórnmálamanna.
Endurreisum Lýðveldi Íslands sem Lýðveldi fólksins sjálfs!
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 3. apríl 2009
Smá óður til skrifborðsins míns
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)