Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Virtualis

Frýs í æðum frumhlaups blóð,

því fann það ekki vorið?

kannski á að komast á slóð,

kemst það þá á sporið?


Alltaf fyrir kosningar fæ ég skrýtið suð fyrir eyrun. Sem er eitthvað svona smánarlega svipað og “Tinnitus”. Iíííííiiiiiiii. Úff hvað þetta getur verið óþægilegt.


Helgast það mikið til af öllu þeim hrærigraut loforða sem hellast yfir mann og erfitt er að átta sig á. Mörg hver þeirra svipuð ef ekki eins og loforðin fyrir fjórum árum. Ó, Guð hvað þjóðin er búin að gleyma. Og sjá svo allt þetta og heyra hvað sumt þetta ágæta fólk er að bera á borð fyrir fólk.


Svo eru það hinir sem sjá fylgið hrynja út í veður og vind fyrir aðra að grípa það. Þá er brugðið fyrir sig sýndarveruleikafirringu í örvæntingu og upphafin glansmynd með bláu bindi í ofurjakkafötum.


Svo koma þeir gargandi fylgisveinarnir og konur, “ó hvað þetta er gargandi snilld” Allt eftir því hvað upphrópanirnar koma og svona nær alveg sama úr hvaða flokki þær koma. Svona eitthvað svipað og með snilldina, en fatta ekki andstæðuna eins og hún blasir við frá sjónarhorni hinna.


Svo eru það sumir sakleysingjar sem eru dregnir inn í aðstæður hjá flokkum, án þess að vita nákvæmlega hvað er um að vera innan hans. En hrekkur svo við þegar að fylgið er lítið þrátt fyrir alla vinnuna. Og svo falla málin fyrir kosningar og flokkar klofna. Vaknaðu vinur!


Það væri þannig sérstaklega áhugavert að gera könnun á trúverðuleikann. En hver er fær um að meta það, sérstaklega í ljósi hér að ofanverðu.


Svo segja menn hitt og þetta afþví það hljómar svo vel.


En ég veit vel afhverju vorið er ekki komið enn. Íslendingar eru í tveggja mánaða súrrealískum sýndarveruleika.

En hvað tekur við? Hvað er næst?

“having sex with an alien?”



Úr leikhúsi fáránleikans - Hatvinnuauglýsing

Bófar - ehf (eitthvað háð fáránleika), hundleiðinlegasta og ömurlegasta fyrirtæki í heimi óskar að ráða framkvæmdastjóra, sérfræðing í að setja fyrirtæki á hausinn.

Há-ðleg laun í boði fyrir rétta manninn. Því hærri laun sem fyrr honum tekst ætlunarverkið. Enn háðulegri eftirlaun en úr fyrra starfi. Hver vill sækja um?

Spáið í það!
Hér og þar um þjóðfélagið er stjórnendum boðin himinhá laun í fyrirtækjum og há eftirlaun. Án þess að missa laun eða lækka í launum þó fyrirtækið fari í gjaldþrot. Standa svo ríkir eftir vegna þess að fá há eftirlaun.

Á meðan að heilbrigt fólk nurlar saman 2 til 5 milljónir króna til að eiga fyrir að borga upp í kaup á nýrri íbúð.  Tekur svo lán fyrir restinni. En svo kemur að því að það getur ekki borgað vegna þess að vextir og gjöld eru himinhá og hækka endalaust, langt umfram ævilegrar fjárhagslegrar getu fjölskyldunnar til að halda áfram að borga. Svo krefjast þeir af okkur að við borgum áfram af því sem þeir sjálfir bjuggu til.

Og þegar að fólkið getur ekki lengur staðið í að borga þá heimta þeir allt saman. Ekki bara íbúðina, heldur líka þessar litlu 2 til 5 milljónir sem fjölskyldan náði að nurla saman. Allt farið. 

Spáið í það! Hvar er réttlætið í þessu þjóðfélagi?

 


Réttlæting stjórnmálamanna

* Eru stjórnmálamenn á Íslandi siðferðilega vanþroska?

Þjóðfélagið morar allt í mauraþúfunni. Innan um allt kaðrakið hristast stjórnmálamenn og skjálfa  á beinunum í yfirlýsingunum og afsökununum. Eins og: ég gerði þetta vegna þess, og svo framvegis...........Þeir sem kunna að lesa í andlits og líkamstjáningar sjá hvað hér fer fram. 

Listin að friðþægja sjálfa sig birtist í ýmsum myndum

Þeir sem eru ekki trúaðir koma með siðlætingu sem felst í afsökunum með því að tjá sig að allt það sem þeir gerðu var rétt og satt. Sama þó hið gagnstæða blasi við almenningi. Þannig eiga slíkir stjórnmálamenn til að ljúga eða blekkja. Algjörlega siðblindir vita ekki einu sinni af gjörðum sínum. Hinir smá meðvituðu eru minni menn fyrir því að biðjast ekki afsökunar á gjörðum sínum. En slíkt væri langbest fyrir manneskjuna sjálfa hugarfarslega og myndi hjálpa fólki til að sjá trúverðuleika. Til að geta haldið í traust á honum. Stjórnmálamaður sem viðurkennir ekki mistök og biðst afsökunar missir þannig virðingu almennings vegna þess að augljóslega virðir hann sig ekki sjálfur. Hann missir þannig traust líka sem verður til þess að hann tapar trúverðuleika. Síðan má spyrja sig hvort slíkur stjórnmálamaður sé heiðarlegur, sem hann er augljóslega ekki.

Þeir hér bæði peningamenninir og hægri sinnuðustu frjálshyggju stjórnmálamenn sem brotið hafa af sér leita oft friðþægingar í trúnni. Þeirra réttlæting felst í því að hlusta á aðra segja sér hvað sé rétt og gott. Hinsvegar er allt eins víst að þegar á hólminn er komið er ekki farið eftir því. Vegna þess að það rekst á við fjárhagslega hagsmuni þeirra. En við fjárhagslega hagsmuni geta komið upp aðstæður sem þeir  spyrja sig hvort þeirra ákvarðanir séu löglegar, ólöglegar eða siðlausar. Þar að segja hjá þeim sem slíkt skiptir máli. Hinsvegar nota margir þeirra tækifærin sem koma upp í hendurnar, alveg sama hvort þær eru réttlætanlegar eða ekki. Aðstæður gætu verið þannig að bjarga sér út úr fjármála óráðsíu svo dæmi séu nefnt. Einnig að geta notfært sér aðstæðunar sem aðrir bjóða þeim upp á, hvort sem það eru vinir eða ókunnugir. Þeir kunna listina að fela gjörðir sínar. Þessar persónur eru fyrst og fremst óheiðarlegar í fjármálalífinu sem blasir útá við. Þeir sem eru hvað verstir og siðblindir sjá ekki neitt ranglátt við gjörðir sínar.

Áttum okkur á þeim sannleika að fjármálamenn gera allt sem þeir geta til að eignast peninga og þó þeir hugsi um að vera strang heiðarlegir þá geta komið upp þær aðstæður sem öll slík loforð hverfa eins og dögg fyrir sólu. Þeir gera allt til að bjarga sér úr aðstæðum. Virðing manna fyrir slíku fólki verður á sama hátt engin vegna þess að þeir kunna ekki að virða sjálfa sig.

 


Kosningabylting

*  í liðið, þá fór hver að öðrum, til að allt riðlaðist í smáa flokka.
* þá skrámir það ljós fyrir augu mér, að mér verður ekki að skapi.

* og þegar lýðurinn kemur þar að þá rennur það út eins og heitar lummur.
* en saga sú var misjöfn að atgervi, að nokkru eða sumu leyti, hálfvegis.

KOSNINGABYLTING

Aldrei hefur verið eins tækifærið og nú til að renna inn í framtíðina saman. Ef við gerum það ekki núna þá verður sennilega aldrei af því. Hinsvegar verðum við að tempra viðmót okkar hvort sem við styðjum hægri, miðju, vinstri, eða ekkert af því, þá sjáum við að allir hafa bæði nokkuð til síns máls og ekki til síns máls. Spáið í það. Það er fullt af fólki sem er sárt og reitt yfir því hvernig stjórnmálamenn hafa komið fram það. Hvað þeir hafa gert og ekki gert. Það er því réttlát krafa að okkur sé bættur skaðinn af hruninu. Hinsvegar yrði réttlætið sett í fyrsta sætið!

Hvað er réttlæti?


Er ekki frumskilyrði að allir hafi það réttlæti að vera skuldlaus og hafa í sig og á? Er þetta ekki einmitt öflugasta dæmið um mismunun fjármálakerfisins á milli manna? Er það ekki það ekki augljóst að ef fjármálakerfi hrynur þá gengur það ekki upp! Vinna þarf að nýju kerfi. Það er rökréttast.


Er það ekki réttlæti líka að okkur sé boðið upp á það val að efla okkur sem manneskjur í því þjóðfélagi sem væri boðið uppá?

Er það ekki réttlæti líka að geta boðið börnum okkar sanngjarna framtíð án erfiðleika þess að lendi í ýmsum fjárhagslegum áhyggjum sem að mestu til við unnum ekki til. Þó kannski megi  sumstaðar um það deila hverjir eiga skilið eða ekki. 

Flokksvani

Á Íslandi virðist fólk haldið þeirri hræðslu við breytingar, jafnvel þó að það vilji breytingar. Það gerist því oft að fólk fer að kjósa það gamla aftur út vananum. Einskonar Stokkhólmsheilkenni.

Það er hinsvegar svo að við íslendingar förum alltaf að gömlum vana að setja skoðanir okkar inná og ætla okkur að þeir sem kosnir verða muni breyta einhverju. Að koma með kröfunar inn í stórgallað kerfi. Gallaðan vinnustað sem við berum mjög lítið traust til vegna þeirra vinnubragða sem þar fara fram. En flest okkar höfum við séð hvernig sá vinnustaður hefur verið undanfarið kjörtímabil. 

Er ekki raunhæft að segja að það sé fáránlegt að okkur sé ætlað að kjósa inn á það sem tók réttlætið okkar burt og ætlar ekki að gefa það til baka sem var tekið?.  Hvaða er rökrétt í því að halda í það sem hefur brugðist okkur!? Er eitthvað haldbært í því að kjósa sér  nýtt fólk, inn á þann vinnustað sem er óbreyttur, jafnvel þó að það fólk séð ábyggilega kannski bara það ágætasta? Eða þann flokk sem ætlar sér lítð að fyrir alvöru að gera til að lagfæra. Mundum við bara ekki sjá það sama gerast aftur, að fólk flýi flokka sína þegar að það getur ekki farið eftir öllum óraunhæfu kröfum sem þeir gera.

Stjórnarkreppa

Það er mín skoðun að upp séu að koma þær aðstæður að mjög líklegt verður stjórnarkreppa eftir næstu kosningar. Að ýmsir flokkar munu eiga erfitt að mynda stjórn. Helgast það af ýmsum þeim ástæðum sem hér fyrir neðan eru nefndar. Er þetta síðan ekki bara sem alveg búast má við þegar að mikið hefur gengið á úti í þjóðfélaginu og margt verður til.

1. Til að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn gæti unnið saman þurfa þeir flokkar að gera með sér sáttmála ríkistjórnar.  Í ljósi síðustu daga og atburða þá er það alveg ljóst að erfitt verður að mynda ríkistjórn með þessum flokkum því að þá þyrtu hinir að svíkja loforiðin. Eins og tildæmis Framsókn með verðtrygginguna. Það er því alveg ljóst að þessir flokkar geta ekki unnið saman nema að svíkja kjósendur sína.

2. Það hefur lengi verið ljóst að þjóðinn vill ekki inn í esb. Eins og skoðanakannanir hafa hvað eftir annað gefið til kynna. Því er nú nokkuð ljóst að hvorki Framsókn né Sjálfstæðisflokkur geta myndað stjórn saman við þann flokk sem hefur framhald esb á stefnuskrá sinni. Eins og tildæmis Samfylkingin.

3. Það er nokkuð ljóst að gefa þarf Samfylkingunni frí vegna þess að þeir hafa verið í ríkistjórn í 8 ár. Sem er alveg nóg. Það er því mjög líklegt að enginn annar flokkur vilji semja við hann. Nema þeir sem eru honum sammála í utanríkismálum. En raunhæfast er að segja að það sé ekki nóg. Slíkir flokkar nái ekki meirihluta. Sem er auðvitað það augljósa miðað við afstöðu meirihluta þjóðarinnar til þessara mála.

4. Varðandi Vinstri Græna þá virðist svo vera að esb málið hafi afgerandi áhrif á stuðning við þann flokk. Eitthvað mikið þarf til þess að aðrir flokkar vilji semja við þá.

5. Hvað litlu flokkana varðar þá virðist svo vera í raunveruleikanum að enginn þeirra fái mann inn á þing. Að minnsta kosti yrði það þannig að sá flokkur sem hugsanlega kæmi manni/mönnum inn, hefði lítið að segja í stjórnarandstöðu.  Slíkt er alveg augljóst hvað varðar þetta kjörtímabil.

Það er því nokkuð ljóst að erfitt verður að mynda nýja ríkistjórn eftir kosningar.

Er þá ekki upplagt að vera minnsta kosti vel undirbúin fyrir þann glundroða sem mikil hætta á er að myndist?

Spáið í það! Er ekki besta leiðin fyrir að hópur manna sem víðast úr þjóðfélaginu sé valið saman til í sérstaka framfarastjórn til að koma réttlætinu á? Að lagfært væri þau mál sem þarf að lagfæra. Eins og þau mál sem hafa verið efst á baugi, verðtryggingin, lánamál og íbúðamálin? Það er alveg á hreinu að sú væri réttasta leiðin út úr þeim málum sem þarf að vinna að. Að sá hópur setti sér áætlun að klára verkefnin á sérstökum fyrirfram ákveðnum tíma. Og vinni á annan hátt heldur en alþingi hefur gert. Tildæmis að allir fundir sé við borðin í stað þess að nota ræðupúltin þó að slíkt sé freystandi.


Það er því skynsemi að kjósa ekki!


Alla vega þá er ég alveg ákveðinn að nota skynsemina og mun ekki mæta til að kjósa! Það eru fyrir mig svo ótal ástæður að kjósa ekki. Hinsvegar mun ég vera sjáanlegur út um alla Reykjavík þennan dag með barmmerki þar sem ég verð slagorðunum Ég kýs ekki á alþingi. "Ég vil réttlæti" 

____________

En ég hef verið að velta því fyrir mér hvort ekki væri hægt að búa til aðstæður þess að þeir sem ekki kjósi geti fengið miklu meira vægi heldur en tíðkast hefur hér á Íslandi. Allavega set ég fram hér þær pælingar mínar hér fyrir neðan.

Nú munu sumir kannski segja að atkvæðið sé dautt ef ég kýs ekki. Ég spyr á móti!: hvað ef undir 50% þjóðarninnar ákveður að kjósa ekki og mikill hluti þeirra segir um leið hversvegna?


Ég kýs ekki, ég vil réttlæti


Þettar er draumur minn!!!!!

______________________________________________________

Í því skyni bjó ég til þetta skjal fyrir nokkrum dögum:

______________________________________________________

Við krefjumst réttlætis


Við erum hópur fólks á Íslandi sem viljum mynda manneskjulegt og réttlátt samfélag. Í því skyni munum við vera áberandi úti í þjóðfélaginu fyrir næstu alþingiskosningar.

 

Við leggjum til eftirfarandi:


Að fá fólk til að kjósa ekki í næstu alþingiskosningum og tjáum okkur meðfram því sérstaklega hversvegna (öll með sömu orðum).

 

Hópurinn safni inn fólki hér og þar af öllu landinu. Sem vinnur að því að safna inn fólki og að dreyfingu slagorðana.

 

Takmark okkar er að kosningaaðsókn fari vel undir 50% til að mynda aðstæður fyrir sérstakri stjórn sem sæi um að taka á helstu málunum í þjóðfélaginu, einskonar stjórn utan þingsins.

 

Takmark okkar að stuðningurinn verði það mikill að hópurinn njóti svo mikils prósentu fylgis, eða til jafns við þann flokk sem yrði stærstur í prósentutölu eftir kosningar.


Tökum dæmi:

Ef Sjálfstæðisflokkur fengi 28% fylgi af þeim 48% sem kjósa,

Þá fengjum við allavega 29% af þeim 52% sem kjósa ekki.


Leitað síðan yrði til Forseta Íslands hr. Ólafs Ragnars til að styðja við tillögur okkar að mynda utanþingsstjórn vegna aðstæðnanna. Þessir aðilar settu sér sérstök markmið sem yrðu síðan borin undir forsetann.


Unnið væri sérstaklega á að vinna velja þau mikilvægustu atriði sem þarf að lagfæra og leggja þau fyrir forseta.

 

Við viljum Manneskjulegt og Réttlátt samfélag

Við viljum að umhverfi vinnustaðarins alþingis verði breytt og alþingi gert manneskjulegt.

Við viljum að tekin verði sérstök atriði og unnið að þeim utan alþingis. Og að þau verkefni verði sett á sérstök tímamörk.

Við viljum  að  á þessu tímarki muni sú stjórn vinna saman að  réttlætislausnum á aðalvandamálum fólks í landinu.


Við krefjumst réttlætis

 

 


Áskorun á Ríkistjórn - Video

Gott fólk.

Í dag eru 50 dagar þangað til að þjóðin á að kjósa um stjórnarskrárspurningar í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Það er mikilvægt að þeir sem eru andstæðir inngöngu í ESB mæti í kjörklefann og segi þvert NEI við spurningu 1.

Í 111. grein tillagna stjórnlagaráðs, - Framsal Ríkisvalds stendur:

>Heimilt er að gera þjóðréttarsamninga sem fela í sér framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana sem Ísland á aðild að í þágu friðar og efnahagssamvinnu. Framsal ríkisvalds skal ávallt vera afturkræft.

Með lögum skal afmarka nánar í hverju framsal ríkisvalds samkvæmt þjóðréttarsamningi felst.


Samþykki Alþingi fullgildingu samnings sem felur í sér framsal ríkisvalds skal ákvörðunin borin undir þjóðaratkvæði til samþykktar eða synjunar. Niðurstaða slíkrar þjóðaratkvæðagreiðslu er bindandi.<



Ef þjóðin mætir í kjörklefann þann 20. október og setur X NEI við spurningu 1, er sjálfhætt í viðræðum við esb og helsta mál Ríkistjórnarinnar fallið um sjálft sig.
Og í sjálfu sér sjálfsögð krafa að ríkistjórnin segði af sér í framhaldinu.

Þetta Video er það fyrsta af nokkrum sem ég mun setja inn á næstunni.





Los comentarios tontos de los políticos

Ég lifi í heimi þar sem stjórnmálamenn rífast endalaust sín á milli hvort það sé rétt sem þeir segja eða ekki. Þar sem ásakaninar ganga á víxl. 

Margoft eru bornar á borð fyrir fólk fréttir þar sem ýmsu er haldið fram. Nú er það hvort það voru kjaraskerðingar eftir hrun eða ekki. 

Í síðustu viku kom fram stjórnarandstæðingur sem sagði að við værum miklu ver stödd nú eftir hrunið. 

Í dag er það stjórnarliðið sem segir að umtalsverður árangur hafi orðið við að milda áhrif lág- og millitekjufólks eftir hrunið. 

Í reynd er það fólk sem hefur svo sannarlega mest orðið fyrir barðinu á kreppunni sem getur best sjálft sagt frá hvernig málin standa. Staðreyndinar er nefnilega þær að vöruverð hefur hækkað umtalsvert mikið og það aftur og aftur. Sem og bensínverð og flest öll þjónustugjöld. Staðreyndinar eru þær að margt það fólk sem skuldaði mikið fyrir hrun, gerir það enn og á mjög erfitt að láta enda ná saman. 

Staðreyndinar eru þær að heilu fjölskyldurnar fara í Tunnur og leita eftir Flöskum að selja til að hafa einhverjar krónur til að fæða sig. 

Svo reyna þeir stjórnmálamenninir að bera hver af sér með því að notast við ávirðingarnanar sín á milli. Einn segja að stjórnmálin séu ekki vinaleg lengur. Og annar ber ávirðingar á hinn með því að svara að hann sé kominn af ríkum ættum þegar að hann hefur ekkert annað að bera fram í vörn sinni fyrir samverkamenn sína.

Frekar aulalegar varnir.

Það er nú svo þessi endalausa Refskák sem menn stunda. Bæði fréttamiðlar og blogg þar sem ávirðingarnar ganga á víxl. Sumir eru þar hvað verstir. Eitt blogg er þannig tildæmis rætið og neikvætt. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn.  En einn er sá sem er mjög duglegur í þessari Refskák allri. Enda reyni ég að forðast bloggið hans í lengstu lög.....

 

 


mbl.is Ráðstöfunartekjur rýrnuðu um 27%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpsamlegar hækkanir síðustu vikurnar

Afhverju í ósköpunum hækkar alltaf bensínverð hér á landi jafnt og þétt þótt að heimsmarkaðsverðið lækki?

Nú var nefnilega í fréttum í morgun í Útvarpi að bensínverð erlendis hafi lækkað umtalsvert vegna aðgerðar Frakklands. 

Ætti þá ekki að vera skilyrði fyrir Olíufélögin hér að fylgja því?

Því miður hafa Olíufélögin ekkert farið eftir að lækka verð á bensíni til samræmis við annarsstaðar í heiminum. Þvertá móti sjáum við hækkanir eftir hækkanir en aldrei lækkanir.

Ætti ekki að vera betra eftirlit með bensínverði hér á landi? Eins og tildæmis að setja í gang séststakt bensínráð í stjórnsýslunni, sem heldur utanum og passar upp á að verðið hækki ekki þegar tildæmis að það lækkar annarsstaðar í heiminum. 

Eins mætti setja sérstakar takmarkanir á hagnað Olíufyrirtækja einmitt vegna þess hversu þjóðin er þörf fyrir Bensín. 


mbl.is ÓB hækkar bensín um 4 kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnvöld sjá ekki skóginn fyrir trjám

Besta leiðin hefði verið fyrir stjórnvöld að sækjast sérstaklega eftir því að setja saman hóp manna héðan og þaðan úr þjóðfélaginu. Bæði menntað fólk sem og ómenntað til að ná fram með vinnu hvað best væri að gera.

Út í þjóðfélagið berast raddir héðan og þaðan í útvarp, sjónvarp, veffréttamiðla og útprentuð blöð. Frá sérfræðingum sem þykjast vita allt best. En svo koma aðrir og segja eitthvað allt annað og þykjast það líka. Almenningur veit ekkert hverjum á að trúa. Nema þá kannski að hafa lært að trúa ekki hverju sem er.

Allskonar ráðleggingar eins og tildæmis: við eigum að taka upp efru vegna þess ,,,,,,bla,bla,,,. Sem og hið gagnstæða. 

Í stað þess er þjóðin enn að berjast við afleiðingar hrunsins og því miður sér langt fyrir endan á þeim málum. Það er síðan með ólíkindum alveg að stjórnvöld standa þeim sem varð hruninu valdandi í stað þess að standa með fólkinu. 

Nær eina vitið hefur komið frá fólkinu sem vinnur hörðum höndum að því að fá almenningi skaðan af hruninu bættan. Sem og því fólki sem hefur áttað sig að við svo má ekki búið standa. Það er gjörsamlega ómögulegt enn annað að vitiborið fólk sjái að þetta er ekki hægt lengur. 

Þjóðin þarf að velja sér nýjar leiðir. Ástæðan er sú að leiðin sem var notuð er stórgölluð. Það er augljóst mál. Ekki er hægt að bæta þá leið sem steytir ásteytingarsteinum. 

Ég held að stjórnvöld ættu að læra að fara dálítið meira eftir því sem almenningur í landinu vill að meirihluta. Í stað þess að standa gegn fólki. Það væri miklu meiri vit í því.

Annað er að sérfræðingarnir ættu nú að sleppa öllum rugluðu yfirlýsingunum í fréttum um hitt og þetta. Þeir hafa ekki sýnt fram á mikið skynbragð á stöðu landsins. Nema þá að vera vilhallir þeim sem bjuggu til höggin og koma með allskonar bull oft þvert á við staðreyndir í málunum.

Sagan mun segja að þeir sem standa ekki með þjóð sinni til framtíðarinnar munu gleymast í moldu grafar eða verða minnst aðeins fyrir þá skömm sem þeir eru valdandi.

Það er nokkuð augljóst mál að besta leiðin fyrir okkur er að finna leiðir til að efla framgang landsins okkar með nýjungum til framtíðarinnar. Eins og tildæmis að stórefla og setja í gang verkefni í vistvænni fæðuöflun. Með slíku sýnir þjóðin það vit með því að segja: við ætlum að taka á hlutunum öðruvísi. Sjálfbærni er einfaldlega næst á dagskrá. Það þyrfti að setja í gang heildstæða stefnu í þeim málum og búa þannig um knútana að svæði það sem setur verkin í gang njóti alvöru afrakstur af þeim verkefnum sem sett væru í gang.

Eins og staðan er núna er langt frá að afleiðing kreppunnar sé búin. Og svo virðist að fjármálahirðin hafi ekki neitt lært og ætli sér að leika sama leikinn aftur og aftur.

Lærum að efla Ísland að eigin verkum en ekki annarra. 


mbl.is Læra af hagsýnum víkingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta sem koma skal?

Verður það tilfellið að þau líklega fáu mál sem verður dæmt í vegna innherjasvika fari í lágmarksdóm? 

Hefði maðurinn auðvitað ekki átt að fá amk. þessi 09 ár sem þó er hámarkið? Og maður í mikilvægu opinberu starfi.

Ég spyr mig. Er þessi maður kannski einhver blóraböggull? Hvernig verður svo með alla hina gaurana? Því það hefur verið fullt af þeim undanfarin ár.

Lög um innherjasvik hafa margoft verið brotin, hér og þar. Og það meira að segja tildæmis eins og var nefnt hérna í fréttum fyrir nokkrum dögum. Einnig hefur það margoft gerst að ábyrgðarmenn innan bankana hafa látið vini sína vita á mögulegum viðskiptum sem komið hafa inn til þeirra.


mbl.is Dómur yfir Baldri staðfestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er svo gjörsamlega komið nóg!

Hversu lengi á þetta að ganga?

Það er orðið nú svo komið að verkamenn og fólk í lægri launaflokkum hafa ekki efni á að reka Bifreið. Það stendur ekkert eftir á launum þegar að gjöld fyrir bensín eru dregin frá. 

Er ekki bara kominn tími til að leysa málin á öðruvísi hátt?

Hvað með að gera samning við erlent fyrirtæki að við fengjum rétt á að framleiða (sjálf) Bútanól sem getur komið alfarið í stað bensíns?:

http://www.biofuelstp.eu/butanol.html

 


mbl.is Hækka aftur verð á bensíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband