Færsluflokkur: Evrópumál
Mánudagur, 26. júlí 2010
Hverjir neyða hvern?
Það þarf að gera þessum mönnum ljóst að það er aðeins einn ákveðinn flokkur á Íslandi sem ætlar sér að neyða Íslendinga inn í þetta Evrópusamband. Sama hvað það kostar.
Menn verða að vilja fá aðild að Evrópu," sagði Pierre Lellouche, Evrópumálaráðherra FrakkaEf við viljum ekki fá aðild hversvegna að hefja þá aðildarviðræður?
Hinsvegar er svo fáránlegt að segja þessi orð því þó kannanir eftir skoðanakannanir sýna svo ótvírætt að við viljum ekkert þarna inn, þá á að neyða okkur þarna inn. Fyrst Samfylkingin ætlar sér að neyða Íslendinga inn þá verða þeir samsekir ef það tekst.
*****
Notum hvern einasta pening sem á að fara í þessar viðræður í sérstakan sjóð (sjá síðustu færslu mína á undan).
Gott fólk! Verjum Ísland. Eflum andstöðu okkar og verum tilbúin að láta í okkur heyra þegar að umræðurnar hefjast á Alþingi um að draga umsóknina til baka!
ÁFRAM ÍSLAND - EKKERT ESB!
Neyðum enga til aðildar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 12. júní 2010
Ég er með hugmynd!!!!!!!!!!!!!
Eru Sjálfstæðismenn þá tilbúnir í slaginn? Eða er ekki líkegt að ef Ísland dregur umsókn sína til baka að þá muni ríkistjórnin falla?
Hverjir þingmenn VG geta á þessu stigi málsins fylgt á eftir þeirri skoðun sinni að Ísland eigi að vera utan Evrópusambandsins? Hvort er sterkara í þeirra huga að vera áfram í ríkistjórn eða að standa með skoðun sinni? Hvað mun formaður þeirra gera? Mun hann beita þá þrýstingi að halda stjórninni saman?
Eða, á hvaða stund stjórnunartímabilsins mun VG fella ríkistjórnina?
Kannski að það sé þegar búið að semja um nýja stjórn á bak við tjöldin? Sjálf + VG? Eða stjórnarandstaðan + VG og Samfylkingin þá ein í stjórnarandstöðu?
Munu Samfylkingarmenn afhenta Sjálfstæðismönnum völdin á ný eftir að hafa verið aðal orsakavaldur bankahrunans og kreppunar á Íslandi? Hvaða leiðir eru fyrir Samfylkingu út úr stöðunni?
Þeir sem fyrir alvöru kunna að lesa í stöðuna innan Samfylkingu (ef einhverjir eru) ættu að sjá að það besta í stöðunni væri fyrir þá að koma sjálfir með yfirlýsingu að hætta við umsóknina! Aðeins þannig gæti stjórnin haldið velli!
Hugmynd mín:
Nota mætti þá fjármuni sem áttu/eiga að fara í umsóknina á hagkvæman og góðan hátt! Tildæmis mætti setja þá peninga í sérstakan sjóð sem yrði myndaður og sem hefði tvennt að markmiði:
1. að efla atvinnu uppbyggingu á Íslandi og
2. að styðja sérstaklega undir þá láglaunaflokka fólks sem hefur orðið verst úti!
Munu stjórnmálamenn á Íslandi hafa vit á þessu?
Umsókn um aðild að Evrópusambandinu verði dregin til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 11. mars 2010
Þjóðarheiður: Orðsending til íslendinga
2. Þjóðaratkvæðagreiðslan var nýtt upphaf að baráttu meirihluta Íslendinga fyrir algerri höfnun á kröfum Bretlands og Hollands. Þessi árangur hefði ekki náðst án baráttu hins þögla meirihluta, sem sýndi styrk sinn á þessum merka degi, 6. marz 2010.
3. Réttur almennings til að hafna ólögmætum álögum hefur nú verið staðfestur. Þrautseig þjóð, sem stendur bjargföst á lagalegum grundvallaratriðum og heldur þeim fram af rökvísi, verður ekki sigruð. Jón Sigurðsson forseti hefði verið hreykinn af þjóð sinni á þessum tímamótum.
4. Sérstakar þakkir hlýtur forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, sem sannaði að fullveldi þjóðarinnar er í höndum hennar sjálfrar og kom í veg fyrir að Ísland yrði gert að skattlandi tveggja gamalla nýlenduvelda. Með þjóðaratkvæðinu var stjórnarskrá lýðveldisins heiðruð. Framvegis verður að koma í veg fyrir að ólýðræðislegu þingræði verði flaggað sem eðlilegu stjórnarfari á Íslandi. Lýðræðið á sér þann grundvöll að fullveldið er hjá þjóðinni. Það mun ekki verða látið af hendi.
5. Þjóðarheiður hafnar alfarið gjaldskyldu ríkisins vegna Icesave-reikninga Landsbankans. Þar skiptir engu hve langt ráðamenn okkar voru reiðubúnir að ganga (þvert á móti ákvæðum stjórnarskrárinnar!) til að láta ríkissjóð borga gríðarlegar fjárfúlgur vegna máls þessa á fyrri stigum þess, undir óbilgjörnum þrýstingi frá ríkjum sem notuðu sér neyð landsins til að beygja ráðamenn okkar til hlýðni.
6. Nú skiptir mestu að hvika hvergi frá rétti okkar og lagalegri stöðu. Samtökin Þjóðarheiður standa eitilhörð gegn öllum samningaumleitunum við Breta og Hollendinga vegna hinnar ólögvörðu kröfu þeirra að veitt verði ríkisábyrgð vegna erlendra skulda banka í einkaeigu.
7. Allar samningaviðræður ríkisins við Bretland og Holland eru misráðnar og hafa leitt til langvarandi deilna og reiptogs sem hefur sett Alþingi Íslendinga í gíslingu, á sama tíma og fjölskyldur og atvinnuvegir glíma við mestu efnahagskreppu síðari áratuga.
8. Samkvæmt skoðanakönnun, sem MMR gerði og var birt 8. marz, telja um 60% landsmanna að Íslendingum beri alls ekki að ábyrgjast kröfur Bretlands og Hollands. Heilbrigð skynsemi segir okkur að almenningur í þessu landi hafi engar skyldur til að greiða himinháar kröfur frá ríkissjóðum 250 sinnum stærri þjóða. Það eru tryggingasjóðir og bankar í þessum löndum sem bera ábyrgð á umræddum kostnaði með iðgjöldum sínum. Kröfugerð Bretlands og Hollands á okkar hendur er hrein fjárkúgun.
9. Lög nr. 96 frá 28. ágúst 2009 gefa Bretum og Hollendingum færi á því að skuldsetja lýðveldið vegna Icesave með því að þeir fallist á þá fyrirvara sem settir eru í lögunum. Því er brýnt að umrædd lög verði felld úr gildi. Ríkisábyrgð á Icesave-skuld Landsbankans samræmist hvorki stjórnarskrá, evrópskum lögum, þjóðarhag né almennu réttlæti. Þjóðarheiður krefst þess að lög nr. 96/2009 verði afnumin og Alþingi fari þannig að þjóðarvilja.
Ísland til að læra af | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 8. mars 2010
Hvílíkt bull, þvæla og vitleysa!
Þetta voru sko alveg nógu skýr úrslit. Þjóðin hefur sagt sitt!
>Þjóðaratkvæðagreiðslan markaði tímamót af því hún markaði brautina að beinu lýðræði og það er jákvætt,> Sagði Jóhanna.
Hvernig getur hún leyft sér að segja þetta? Er þetta nú allur trúverðuleikinn? Við skulum ekki gleyma hvernig ríkisstjórnin handleraði þessi Lög á Alþingi. Komu í veg fyrir að þjóðin fengi að kjósa um þetta, sem síðan forsetinn leyfði. Já, það var sko ekki hún Jóhanna né hennar lið sem stóð að því að þjóðin fengi að kjósa lýðræðiskosningu um þetta mál. Sem hún Steingrímur sögðu svo sjálf að ætluðu ekki að taka þátt í. Þetta er algjörlega hlægilegt og hreint fáránlegt að svona stjórnmálamaður geti sagt þetta eftir á það sem hefur gengið.
Málið er annars sannarlega ekki búið hvað almenning varðar, því samtökin Þjóðarheiður mun standa vörð um þjóðina með þátttöku hennar! Sama hvað það kostar! Við munum aldrei borga eina krónu af þessu!
Tæp 60% telja að íslendingar eigi ekki að borganeitt skv. nýrri skoðanakönnun MMR! þ.e. "að Íslendingum beri alls ekki að ábyrgjast greiðslur til innstæðueigenda í Bretlandi og Hollandi". 37,3% sögðu að Íslendingar ættu að ábyrgjast greiðslurnar að hluta til, og einungis 3,3% sögðu að Íslendingar ættu að ábyrgjast greiðslur til innstæðueigendanna að fullu.
*
Er þetta ekki nóg? Berið þetta saman við útkomuna í sjálfri þjóðaratkvæðagreiðslunni! Allir heilvita menn eiga að geta sagt sér að þjóðin vill enga Icesave saminga, útfrá þessari skoðanakönnun og atkvæðagreiðslunni.
Það er enginn vandi að hætta öllum viðræðum og láta á það reyna hvort Bretar og Hollendingar sæki málið (á þrotabúið) fyrir rétti.
Hér er slóðin að vefsíðu samtaka Þjóðarheiðurs:
http://wix.com/Thjodarheidur/main/
En ég er umsjónarmaður vefarins.
Kosningarnar ljúka ekki málinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Sunnudagur, 7. mars 2010
Ríkisstjórn segi afsér - það er komið nóg!
Nú fer ég þess á leið við ríkisstjórn Íslands að hætta öllum samningaviðræðum við Breta og Hollendinga.
Svona afgerandi kosning eins og var í gær segir bara að almenningur á Íslandi vill vera laus við þetta Icesave mál. Og ríkisstjórnin á að vinna fyrir almenning í landinu, en ekki á móti honum.
Ef allt væri með felldu hefði ríkisstjórnin komið með fram með yfirlýsingu um að þau ætluðu sér að hætta viðræðum vegna svona afgerandi andstöðu íslendinga. Það er alveg ljóst að almenningur var að segja NEI við að eiga að borga skuldir fjárglæframanna, en ekki bara nei við þessum lögum eins og stjórnin vildi meina.
Það sem segir að úrslitin hafi verið svona afgerandi eða 93 % gefur ótvírætt til vantrausts fólks á ríkisstjórn Íslands.
Ríkisstjórn Íslands segi afsér og skili umboði sínu til Forseta Íslands. Ef ekki. Þá getur fólk farið fram á að Forsetinn afturkalli umboðið.
Næsta verk Forseta eftir það væri að bjóða almenningi að setja í gang undirbúningsnefnd til að undirbúa kosningu í utanþingsstjórn.
Hafni kjósendur breytingunum í atkvæðagreiðslunni tel ég einsýnt að ríkisstjórnin segi af sér og Jóhanna Sigurðardóttir skili umboði til stjórnarmyndunar á Bessastaði. Samþykki kjósendur breytingarnar sem Alþingi hefur þegar afgreitt, þá blasir við að forseti lýðveldisins segi af sér embætti.
Mun þessi þingmaður Samfylkingarinnar vera samkvæm sjálfri sér og bera þetta upp við sitt fólk?
Mun ríkisstjórn Íslands segja afsér?
Helmingur þjóðar vill kjósa um nýja samninga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 6. mars 2010
Þjóðarheiður....Guðni skrifar - drífa sig á kjörstað!!!!!
Koma svo allir því þetta skiptir svo roslalega miklu fyrir framhaldið!
Út frá góðri þátttöku er auðveldara að búa til góða hluti í framtíðinni.
Um 26% kjörsókn í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 6. mars 2010
Þjóðarheiður....Guðni var að taka myndir í mótmælagöngu og á fundi
Heimasíða Þjóðarheiðurs er uppfærð 1 til 2 á dag.
Ég mætti þarna í mótmælagönguna til að taka myndir. Rosalega erfitt þó að fá góðar myndir því það ringdi endalaust.
Ég hef nú sett nokkrar myndir inn á vef samtakana sem ég sé um.
slóðin er:
http://www.wix.com/Thjodarheidur/main/
Þaðan er farið í Myndir fyrir ofan rammann á forsíðunni.
Endilega skoðið inn á síðuna við og við því hún uppfærist nokkuð vel.
Um þúsund manns í kröfugöngu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 6. mars 2010
Þjóðarheiður....Guðni segir X NEI við Icesave!!!!!
Mæta svo öll og kjósa!
Setjið X
við NEI
á kjörseðilinn!
Allir taki með sér vini og vandamenn til að kjósa því nú skal segja alþjóðaheiminum að við látum ekki kúga okkur!
Því meiri þátttaka, því betri!
12.297 atkvæði skráð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 03:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 4. mars 2010
Þjóðarheiður....Guðni Karl skrifar - þjóðin er búin að fá nóg!
Ef mikill meirihluti segir NEI í þjóðaratkvæðagreiðslunni þá er það vantraust almennings á þessa ríkisstjórn! Vegna hvers? Vegna þess hvernig aðilar í þessari stjórn hefur komið fram við almenning í landinu. Með vanvirðinu og óheiðarleik. Með síendurteknum blekkingum og/eða hvítri lygi. Og með því síendurtekð að vinna gegn almenningi.
Því er fólk í reynd að segja að það vilji ekki hafa svona stjórn sem er svona á móti almenningi. Það er ekki bara það að fólk á ekki að borga þetta Icesave! Það er fast í huga fólks hvernig ríkisstjórnin hefur komið fram við það. Og gert allt sem hún getur til að vinna gegn vilja fólksins í stað þess að vinna með því.
Við erum því ekki að bara að kjósa NEI við Icesave!
Við erum líka að kjósa NEI við valdnýðslu!
Því er alveg ljóst að þjóðin mun að skipta sér í tvær fylkingar eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna:
1. þjóðin (sem sagði NEI og fékk nóg af viðræðu ruglinu)
2. ríkisstjórnin
Mun ríkisstjórnin hafa eitthvað svar við því?
Það er í reynd alveg ótrúlegt hvernig þessi ríkisstjórn hefur komið fram við almenning á Íslandi undanfarna mánuði með vanvirðingu, með því að ætla sér að vinna gegn almenningi og setja í peningaálög þau sem þessi einkabanki bjó til. Ef hér á landi hefði verið almennileg ríkisstjórn þá hefði hún staðið með þjóð sinni í þessu máli, i stað þess að vinna gegn þjóðinni og vera að því í marga mánuði.
Festa skal í sögubækurnar hvernig ríkisstjórn hafi ætlað sér ítrekað að koma fram við almenning á Íslandi með því að sýna því vanvirðingu með því að láta sér detta í hug að ælta að fresta þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Festa skal einnig nöfn þessara manna og kvenna sögubækurnar.
Festa skal í sögubækurnar hvernig ríkisstjórnin hefur komið fram við almenning í landinu undanfarna mánuði.
Festa skal í sögubækurnar hvernig þessi ríkisstjórn hefur sýnt almenningi yfirgang, hroka og valdnnýðslu í þessu máli. Og allt í því henni til vansa.
Festa skal í sögubækurnar að ríkisstjórn fór með lýðræðið í þver öfuga átt heldur en hún hefði átt að gera þegar að hrunið var. Eftir að allar kröfur fólks voru á þann veg að fá meiru ráðið. Eins og vilja nýja stjórnarskrá, opna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur, opna fyrir lýðræðið osvfrv.
*Það er engin ríkisábyrgð á Icesave!*
Hér eru blogg nokkurra félaga í samtökunum Þjóðarheiður:
Theódór Norðkvist: http://theodorn.blog.is/blog/theodorn/
Loftur Altice Þorsteinsson: http://altice.blog.is/blog/altice/
Helga Kristjánsdóttir: http://diva73.blog.is/blog/diva73/
Gunnar Waage: http://gunnarwaage.blog.is/blog/gunnarwaage/
Axel Axelsson: http://axelaxelsson.blog.is/blog/axelaxelsson/
Óskar Helgi Helgason: http://svarthamar.blog.is/blog/svarthamar/
Jón Valur Jensson: http://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/
Jón Aðalsteinn Jónsson http://jaj.blog.is/blog/jaj/
Elle: http://eeelle.blog.is/blog/eeelle/
Hér er heimasíða samtakana sem tekur daglegum breytingum:
http://wix.com/Thjodarheidur/main/
Ef áhugi er að ganga til liðs við okkur:
netfangið er: thjodarheidur@gmail.com
Engin niðurstaða í London | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 02:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 3. mars 2010
Þjóðarheiður......Guðni Karl skrifar:
Samtökin Þjóðarheiður vefsíða: http://www.wix.com/Thjodarheidur/main/
Hættið þessu og leyfið þjóðinni að kjósa á laugardaginn! Það yrði borin meiri virðing fyrir stjórninni ef hún hætti viðræðum strax!
Jóhanna talaði um að það gæti verið hagkvæmt að fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni. Til hvers? Jafnvel þó henni yrði frestað um viku þá þarf að ræða nýtt frumvarp á alþingi, þar að segja ef þau næðum nýjum samningi sem þau telja hagstæðari. Þá þurfa þau lög að vera samþykkt á alþingi til að við fáum að kjósa um þau! Og síðan Forsetinn að láta okkur kjósa um þau lög í stað þessa. Það er minn skilningur að öðruvísi sé þetta ekki hægt því ekki er einfaldlega hægt að skipta um lög til að kjósa um! Allt annað er blekkingaleikur og til þess gert að draga málin á langinn.
En hvað segir Forsetinn? Ef ríkisstjórnin fer með nýja samþykkt sérstaklega með það fyrir augum að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um þau. Ætla þau að fá hann til að samþykkja það að láta þau í þjóðaratkvæðagreiðslu? Málin snúist við í andhverfu sína.
Ég hef engva trú á að hugur fylgi máli að veita þjóðinni þjóðaratkvæðagreiðslu og afgreiða málin þannig frá þinginu. Sérstaklega eftir því að hafa neitað um það þar áður.
Ég á bágt með að Forseti Íslands láti fara svona með sig. Það er jú algjör vanvirðing við hann að ætla sér að láta hann ganga á bak orða sinna með að hafa gefið almenningi þetta tækifæri að fá að kjósa um þetta mál. Að ætla sér að koma með nýja samþykkt til hans áður en þau fyrri er kosið um. Ég býst fastlega við að hann muni svara því til að við eigum að klára þau mál sem á eftir að kjósa um heldur en að kjósa um ný.
Svo er það nú algjörlega skammarlegt hverning ríkisstjórnin vinnur í þessu máli. Einmitt vegna þess að ef það er rétt sem sagt er að Bretar og Hollendingar vilji allt gera til að ná að semja áður en að þjóðaratkvæðagreiðslunni er komið. Ef allt væri með felldu þá átti ríkistjórnin að standa gegn slíku og standa með þjóð sinni í stað þess að vera einhver kjölturakki þessara þjóða og gera það sem þær vilja.
Það er óneitanlega skrýtin staða að hræðsla ríkisstjórnar er sú sama og þeirra Breta og Hollendinga. Hræðslan við að láta þessa þjóðaratkvæðagreiðslu fara fram.
Svo ég komi enn og aftur inn á þetta þá er algjörlega ljóst að réttlátast fyrir þjóðina væri að hætta öllum samningum og leyfa þjóðinni að segja sitt um þetta mál! Þá væri jú þjóðin búin að segja álit sitt á þessu ef hún kýs NEI við lögunum og hefði það forvægisgildi fyrir aðrar þjóðir að þora að standa gegn þessum nýlenduveldum. Eins og tildæmis fyrir Grikki. Ég er mjög viss um að alþjóða samfélagið muni líta upp til Íslands ef þetta yrði raunin. Það yrði litið upp til litla Íslands í framtíðinni.
En hvað tæki við? Nú, við eigum bara að bíða og sjá til hvort Bretar og Hollendingar muni fara í mál við okkur. En það er alveg ljóst að þeir yrðu með réttu að höfða mál gegn þrotabúi bankans. Gegn þeim sem áttu þennan banka þegar að þetta allt varð til.
En hvað með Ísland? Verður þessi stjórnarkreppa sem alltaf er verið að hræða okkur með? Hvað skiptir það máli í samhenginu? Bíðið, það er hvort sem er þegar stjórnarkreppa. Því það er alveg ljóst að það þorir enginn að taka við ef stjórnin félli. En ef allt væri rétt þá ætti hún að segja af sér vegna þess að hafa ekki tekist betur að takast á við þetta mál sem og önnur mál fyrir alvöru eins og málefnum heimilanna. Þeir einu sem myndu þora að stjórna landinu væru almenningur sjálfur með aðstoð launaðra sérfræðinga.
Því skiptir okkur svo miklu máli að mæta til að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Því hún skiptir svo miklu fyrir framtíð fólks. Ekki bara útkoman, heldur og hvað gæti orðið hér með framhaldið. Ég skora á alla sem munu segja NEI í þjóðaratkvæðagreiðslunni að tala við alla sem þeir þekkja til að fá þá að mæta á kjörstað og setja X við NEI á atkvæðaseðilninn.
KOMA SVO!
Það er engin ríkisábyrgð á Icesave!
Hér eru blogg nokkurra félaga í samtakana Þjóðarheiður:
Theódór Norðkvist: http://theodorn.blog.is/blog/theodorn/
Loftur Altice Þorsteinsson: http://altice.blog.is/blog/altice/
Helga Kristjánsdóttir: http://diva73.blog.is/blog/diva73/
Gunnar Waage: http://gunnarwaage.blog.is/blog/gunnarwaage/
Axel Axelsson: http://axelaxelsson.blog.is/blog/axelaxelsson/
Óskar Helgi Helgason: http://svarthamar.blog.is/blog/svarthamar/
Jón Valur Jensson: http://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/
Jón Aðalsteinn Jónsson http://jaj.blog.is/blog/jaj/
Elle: http://eeelle.blog.is/blog/eeelle/
Bretar vilja ræða málin áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 02:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)