Frábær tilfynning! Ég skora á alla Lýðveldissinna að gera það sama!

Heilir og sælir Bloggvinir og Bloggóvinir. Nú er dálítið að koma í ljós hversu fólk veit eiginlega lítið um hvað það er að vera íslendingur! Að snerta á þessu fyrirbærum var mjög áhugavert. Ég hef fengið bæði mjög jákvæð og neikvæð viðbrögð við þessari hugmynd minni að skerpa á mig sem íslendingi! Þannig gerði fólk grín að því hvað ég ætlaði að gera. Einn kallaði mig meira að segja Mölbúa og spurgði hvenær ég hefði gert Heit sem íslendingur áður og hvaða bull þetta væri. Vissi greinilega ekkert hvað það er að vera íslendingur og hvað það er að strengja þess heit.

Einn gerðist meira svo góður að senda mér slóðir á fullt af myndir af mérSmile En þessi flökkutýpa, þessi einstaklingur sem auðkennir sig sem "Ómar" er greinilega mjög illa við mig og gerir allt sem hann getur til að sverta mig þegar að hann getur. Sérstaklega í gegnum Bloggið hans JensGud. Sem sýnir bara hreinlega óheiðarleika af verstu gerð. Mig grunar hver þó þetta er! En ég á auðvelt með að fá hjálp að vita hvaðan þessar Ip tölur koma. Hjálp frá internetsérfræðingi sem ég þekki. Einnig var einhver önnur flökkutýpa sem kallar sig "Víðir" með skrýtnar athugasemdir.

Í kvöld arkaði ég á Þingvöll til að endurvekja heit mín sem íslendingur. En það eru mjög margir þættir inn í því hvað það er að vera íslendingur. En svo menn viti þá er að endurvekja Heit sitt að skerpa á skylningi mínum hvað það er að vera íslendingur og öll tengsl í kringum það. Ég er ekki bara að tala um mig persónulega heldur málið í heild sinni líka. Sérstaða míns sem íslendings og sérstaða okkar allra íslendinga.

Skammt er frá því að segja að þegar þessi gjörningur minn (fyrsta ræðan mín sem slík) var búin á þessum stað þá leið mér mjög einkennilega. Einhverskonar vellíðunar andvarp leið um mig.  Svo sannarlega mun ég halda þessu verki áfram á næstu vikum og allir velkomnir til að hlusta og spjalla.

Í kvöld gekk umhugsunin dálítið um hvað við gætum tapað við inngöngu inn í ESB. Þó ég hafi fullt af fleiri atriðum á blaði þá ákvað ég að byrja á að fókusa á þessi atriði. Næsta heit mitt mun þannig ganga nokkuð út á hvað ég vil gera til að skerpa enn frekar á mig sem sjálfa persónuna og hvað hægt væri að gera til að virkja fólk til þess sama.

Hefst nú sagan og Heit mitt.

Ég tek það fram á ég er fyrst og fremst Lýðveldissinni og mun því vinna með ákefð í öllum hópum mjög svipaðs sinnis: Hópar eins og Fullveldissinnar, Heimssýnsfólk og aðra Lýðveldissinna  sem hafa þá skoðun að Ísland hafi ekkert að gera innan ESB. En ég kalla samnefnara yfir alla hópana Lýðveldissinna því endurvekja þarf Lýðveldið á Íslandi eftir allan þann óaldartíma sem gengið hefur yfir þjóðina.

Ég mætti að Þingvöllum um klukkan 19.30 í hörku roki. Náði vindurinn að þrýsta sér alla leið niður í gegnum Almannagjána og yfir á pallana.

Nokkrur fjöldi fólks miðað við aðstæður var þó mættur til að hlusta á Heit mitt. Það var svo um klukkan 20.30 sem ég byrjaði upplesturinn:

Hér er skjalið:

Sæl og blessuð og velkomin öll sömul,

Ástæðan fyrir veru minnar hér eru miklar áhyggjur yfir álög þau sem á að setja yfir landið okkar ef við ákveðum að ganga í ESB.

Ég mæti hérna því fyrir ykkur til að lesa upp heit mín sem íslendingur. Sem skerpa á hlutverki míns sem íslendings í huga mér. Er það  vegna mikilla áhyggna minna á því að við töpum mikið af okkar séreinkennum sem þjóð og sem íslendingar ef við göngum inn í ESB.

Þessvegna finnst mér ég þurfi að skerpa á þessum atriðum með því að minnast lítillega á þau.  Og hvet fólk til að gera eitthvað svipað. Ef ekki hér þá í huga sínum. Hafa það staðfast þegar að tilboðin berast hver svo sem þau eru og hvaðan þau koma.

Þó þessi atriði hér séu fest á blað til að lesa upp þá koma þau beint frá hjartanu við innsetningu.

1.    1. Það að vera íslendingur er réttur okkrar alla. Því við lifum í sérstæðu samfélagi manna sem á sér engan líka í öllum heiminum.

2.     2. Það að íslendingar taki sjálfir að sér að búa til mannsæmandi þjóðfélag án aðkomu sambanda sem getur haft mikil áhrif á hvernig lífi við lifum sem íslendingar í framtíðinni. Sama hver staða landsins er! Alltaf.

3.     3. Það að hafa áhuga á, taka þátt og halda á lofti séreinkenningum landsins okkar svo sem eins og menningu þess og aldagamalli sögu þess.

 

4.    4. Það að elska landið mitt og bera virðingu fyrir náttúru þess.

 

5.    5.  Það að taka þátt í einstæðum athöfnum í landinu okkar, jafnt í starfi sem leik. Athafna  sem eru séríslenskar.

 

6.     6. Það að taka þátt í starfi landsins okkar við að byggja hér upp áframhaldandi sérstæði Íslands meðal þjóða. Eins og með að framleiðslu  séríslenskra vörutegunda. Vörur sem vegna gæða og hreinleika  væru alltaf samkeppnisfærar við aðrar svipaðar vörur sem framleiddar eru í heiminum. Vörur sem allir myndu vilja kaupa af okkur.

 

7.     7. Það að eiga þess kost sem íslendingur að taka á öllum málum sínum sjálfir. Og geta þannig alltaf tekið eigin ákvarðanir án aðkomu annara utanaðkomandi aðila og afla eins og tildæmis ESB.

 

Læt ég þessi atriði nú duga en hvet fólk til þess að hugleiða þessi mál vel og vandlega þegar að við förum í þessa mikilvægu baráttu sem framundan er.  En hún verður ströng og löng og getur orðið hörkuleg.

Síðan hvet ég fólk að vera alltaf vakandi fyrir öllum utanaðkomandi áhrifum hver svo sem þau eru.

Einnig hvet ég fólk að ganga í það með okkur að vinna ötullega í því að hjálpa til í baráttunni sem framundan er. Því allar góðar hendur og góðir hugar eru velkomnir í hópa okkar sem í er fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins og með nær öllum stjórnmálaskoðunum.  Að vera Lýðveldissinni er m.a. að verja hagsmuni og séreinkenni Íslands.

Að lokum hvet ég ykkur til að fjölmenna á alþingispallana við atkvæðgreiðsluna þegar að hún fer fram. Hugsa mætti sér að við öll réttum upp hendur þegar að sagt er NEI! (ég tek það fram að ég veit alveg hvernig atkvæðagreiðslan fer fram.  Þannig að þingheimur sjái það!

Þakka ég svo fyrir. En verð hér aftur eftir viku. Til að taka á móti þeim sem hafa áhuga að koma með eigin heit á blað til að lesa upp yfir þá sem mæta. Og með ný heit sem vekja mig enn frekar til umhugsunar!

 

 Ég mun ákaft koma með fleiri atriði sem fjalla um persónulegt líf á næstunni. Jafnvel bera þetta saman utan og innan ESB.

 

ÞESSI ATHÖFN VAR LANGBEST OG ÁHRIFARÍKUST (og æðislegust)  AÐ FRAMKVÆMA Í NÁLÆGÐ VIÐ GAMLA LANDIÐ OG GAMLA LÖGBERGIÐ Á ÞINGVÖLLUM.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ég mun fjalla um hvert og einstakt atriði hér á morgun. Frá 1 til 7.

Guðni Karl Harðarson, 14.7.2009 kl. 23:46

2 Smámynd: Ísleifur Gíslason

Þetta var góð stund á Lögbergi í kvöld

Ísleifur Gíslason, 15.7.2009 kl. 01:59

3 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Þakka þér fyrir Ísleifur. Mér leið mjög vel eftir að ég hafði framkvæmt þetta! Og ég mun svo sannarlega halda þessu áfram á næstu vikum!

Með ýmsum formerkjum.

Guðni Karl Harðarson, 15.7.2009 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband