Færsluflokkur: Bloggar

Enn ein endalausa vitleysan

Þessi slagorðaflaumur hans Þórs Saari er með ólíkindum. Við sjáum til hvernig framtíðin verður. Hvað ætli hann segi þá?

Kannski maður taki saman allt það sem hann hefur sagt um þetta mál og beri það upp seinna? Hver veit.

Þeir hrópa hæst um lýðræði sem vita minnst hvað það er. Eins og esb-össinn hann Þór Saari. 

 


mbl.is „Útfararræður stjórnarskrárinnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalaus vitleysa

Sjáið fyrir ykkur sambærilegt:

Hljómar auðvelt, en er það alls ekki!

Hópurinn liggur á bakinu á gólfinu, í hring þannig að höfuðin liggja saman. Svo loka allir augunum og hafa algera þögn. (Þetta getur tekið smá stund!)

Þegar það hefur náðst, segir einhver (hver sem er): A. segja hátt A ...... koma svo Cool

Einhver annar segir þá B og sá þriðji C. Röðin er ekki ákveðin fyrirfram. Ef hins vegar tveir segja óvart samtímis næsta staf, þarf að byrja aftur á A.

Takmarkið með þessari æfingu er að komast til enda í stafrófinu, án þess að nokkurn tíma tveir tali samtímis. Þetta er æfing sem kemur á óvart, því hún er erfið. Ath. það skiptir í raun ekki máli hvort maður kemst til enda eða ekki (það er nánast ómögulegt). Hópurinn getur verið búinn að ná fínni samstillingu án þess að komast nokkurn tíma lengra en að H! :-)

En verið svo bara sammála á að halda leiknum áfram Blush Ég get ekki setið á mér.
mbl.is Engin niðurstaða um stjórnarskrána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr leikhúsi fáránleikans - Hatvinnuauglýsing

Bófar - ehf (eitthvað háð fáránleika), hundleiðinlegasta og ömurlegasta fyrirtæki í heimi óskar að ráða framkvæmdastjóra, sérfræðing í að setja fyrirtæki á hausinn.

Há-ðleg laun í boði fyrir rétta manninn. Því hærri laun sem fyrr honum tekst ætlunarverkið. Enn háðulegri eftirlaun en úr fyrra starfi. Hver vill sækja um?

Spáið í það!
Hér og þar um þjóðfélagið er stjórnendum boðin himinhá laun í fyrirtækjum og há eftirlaun. Án þess að missa laun eða lækka í launum þó fyrirtækið fari í gjaldþrot. Standa svo ríkir eftir vegna þess að fá há eftirlaun.

Á meðan að heilbrigt fólk nurlar saman 2 til 5 milljónir króna til að eiga fyrir að borga upp í kaup á nýrri íbúð.  Tekur svo lán fyrir restinni. En svo kemur að því að það getur ekki borgað vegna þess að vextir og gjöld eru himinhá og hækka endalaust, langt umfram ævilegrar fjárhagslegrar getu fjölskyldunnar til að halda áfram að borga. Svo krefjast þeir af okkur að við borgum áfram af því sem þeir sjálfir bjuggu til.

Og þegar að fólkið getur ekki lengur staðið í að borga þá heimta þeir allt saman. Ekki bara íbúðina, heldur líka þessar litlu 2 til 5 milljónir sem fjölskyldan náði að nurla saman. Allt farið. 

Spáið í það! Hvar er réttlætið í þessu þjóðfélagi?

 


Hvernig væri?

Já hvernig væri að fólk noti nú tækifærið fyrir alvöru að losa sig við allan 4flokkinn? Það er svo sannarlega kominn tími til þess!

Það eru svo mörg okkar búin að fá yfir okkur upp í kok af þessu liði!

Við gætum unnið að réttlætinu saman. Það við viljum ná fram.

Eins og:

Verðtrygginguna burt!

Lagfæra lána og íbúðamál!

Sérstakur stuðningur við fátækt fólk sem hefur orðið undir....

Sérstakur stuðningur við aldraða og öryrkja.

Þessi mál þarna gæti verið aðal málin.


Aldrei hefur verið eins gott tækifærið til þessa eins og nú!


mbl.is „Bjóða ís fyrir alla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttlæting stjórnmálamanna

* Eru stjórnmálamenn á Íslandi siðferðilega vanþroska?

Þjóðfélagið morar allt í mauraþúfunni. Innan um allt kaðrakið hristast stjórnmálamenn og skjálfa  á beinunum í yfirlýsingunum og afsökununum. Eins og: ég gerði þetta vegna þess, og svo framvegis...........Þeir sem kunna að lesa í andlits og líkamstjáningar sjá hvað hér fer fram. 

Listin að friðþægja sjálfa sig birtist í ýmsum myndum

Þeir sem eru ekki trúaðir koma með siðlætingu sem felst í afsökunum með því að tjá sig að allt það sem þeir gerðu var rétt og satt. Sama þó hið gagnstæða blasi við almenningi. Þannig eiga slíkir stjórnmálamenn til að ljúga eða blekkja. Algjörlega siðblindir vita ekki einu sinni af gjörðum sínum. Hinir smá meðvituðu eru minni menn fyrir því að biðjast ekki afsökunar á gjörðum sínum. En slíkt væri langbest fyrir manneskjuna sjálfa hugarfarslega og myndi hjálpa fólki til að sjá trúverðuleika. Til að geta haldið í traust á honum. Stjórnmálamaður sem viðurkennir ekki mistök og biðst afsökunar missir þannig virðingu almennings vegna þess að augljóslega virðir hann sig ekki sjálfur. Hann missir þannig traust líka sem verður til þess að hann tapar trúverðuleika. Síðan má spyrja sig hvort slíkur stjórnmálamaður sé heiðarlegur, sem hann er augljóslega ekki.

Þeir hér bæði peningamenninir og hægri sinnuðustu frjálshyggju stjórnmálamenn sem brotið hafa af sér leita oft friðþægingar í trúnni. Þeirra réttlæting felst í því að hlusta á aðra segja sér hvað sé rétt og gott. Hinsvegar er allt eins víst að þegar á hólminn er komið er ekki farið eftir því. Vegna þess að það rekst á við fjárhagslega hagsmuni þeirra. En við fjárhagslega hagsmuni geta komið upp aðstæður sem þeir  spyrja sig hvort þeirra ákvarðanir séu löglegar, ólöglegar eða siðlausar. Þar að segja hjá þeim sem slíkt skiptir máli. Hinsvegar nota margir þeirra tækifærin sem koma upp í hendurnar, alveg sama hvort þær eru réttlætanlegar eða ekki. Aðstæður gætu verið þannig að bjarga sér út úr fjármála óráðsíu svo dæmi séu nefnt. Einnig að geta notfært sér aðstæðunar sem aðrir bjóða þeim upp á, hvort sem það eru vinir eða ókunnugir. Þeir kunna listina að fela gjörðir sínar. Þessar persónur eru fyrst og fremst óheiðarlegar í fjármálalífinu sem blasir útá við. Þeir sem eru hvað verstir og siðblindir sjá ekki neitt ranglátt við gjörðir sínar.

Áttum okkur á þeim sannleika að fjármálamenn gera allt sem þeir geta til að eignast peninga og þó þeir hugsi um að vera strang heiðarlegir þá geta komið upp þær aðstæður sem öll slík loforð hverfa eins og dögg fyrir sólu. Þeir gera allt til að bjarga sér úr aðstæðum. Virðing manna fyrir slíku fólki verður á sama hátt engin vegna þess að þeir kunna ekki að virða sjálfa sig.

 


Hvað er raunverulegt lýðræði?

Hvora staðhæfinguna aðhyllist þú?

*Lýðræði
felst í því að velja sér yfir sig stjórnendur, eftir að þeir hafa sagt þér hvað þú heldur að það sé sem þú vilt heyra?

*Lýðræði felst í því að ég sem einstaklingur er fæðist í þennan heim fæ að hafa áhrif á þarfir mínar og væntingar. Að ég sem einstaklingur hafi rétt á því að tjá mig um þarfir mínar og skoðanir á þeim og að tekið verði tillit til þeirra af stjórnendum.


Hvað er eiginlega lýðræði?

Sjáðu fyrir þér eftirfarandi:

Á hverju landsvæði Íslands væri 1 stórt hús þar sem:

1. Í sérstökum sal yrði komið á svæðisþingi sem við kjósum okkur þingmenn í. Bæði beint persónukjör og persónur í gegnum flokkakjör. Svæðisþing sem slík myndu efla hvert landsvæði fyrir sig og hafa ráð á ýmsar framkvæmdir á svæðinu. Á þessu svæðisþingi yrði unnið eftir hringborðsreglu og spjaldanotkun til að tjá sig. Búið að sleppa alveg Ræðupúlti og miklu auðveldar verður að vinna og klára mál.

2. Í öðrum sal á sama stað væri sérstakt almannaþing þar sem almenningur kemur saman og ræðir hugmyndir sínar. Þetta þing væri frjálst fyrir íbúa komna á kosningaaldur en líka væri hægt að fá fram tjáningu hjá íbúum svæðisins með því að búa til mætingaskyldu, til að ná fram fullri nýtingu.

Samhæfanleg virkni

Þau mál sem þátttakendur svæðisþings kjósa sér um eftir umræðu vær síðan borin fram á svæðisþingið og þingið þyrfti að taka það til umræðu. Þannig gert að almannaþingsfulltrúi fengi að mæta á svæðisþingi og taka þátt í umræðu um þau mál sem almannaþingið ákveði. 

Á ákveðnum fyrirfram settum tíma eins og tildæmis 1 sinni í viku, kæmi síðan svæðisþingimaður inn á almannaþingið til mæta með mál og fá álit almennings á því máli áður en að það væri tekið til umræðu á svæðisþinginu.

Með þessu móti væri aðal alþingi íslendinga með miklu færri þingmenn sem ræddu þá bara um mál sem snúast að öllu landinu eftir sérstakri jafnræðisreglu.

Þannig myndi lýðræðið virka best og fólk viti af því að það getur haft áhrif.

Hér er ein ástæða þess að ég myndi aldrei samþykkja nýja stjórnarskrá eins og hún er sett upp. 

 


Hver var tilgangurinn??

Við allt það sem gerðist?

Hrunið, Búsáhaldabyltingin, ags, esb, Icesave. Og öll mótmælin, grasrótarhópar, útimótmælin, fundirnir, bloggskrifin, prófessorabistlar, rifrildin og öll lætin. Aldrei hefur í þjóðfélaginu geisað svo mikil vandamál. Aldrei hafa orðið eins litlar úrlausnir, þrátt fyrir allt. Við erum enn að berjast fyrir réttlætinu.

Spáið í það! Eiga flokkar og menn innan þeirra eitthvað skilið að vinna að lausnum þar sem við gerðum byltingu og 4 ár hafa liðið og við stöndum svo enn í þessum vandamálum.

Og var þetta þá allt til einskins?

Eins og við vitum þá kusum við  yfir okkur ríkistjórn sem við svo rosalega mörg vorum óánægð með.

Svo eigum við að fara að kjósa aftur.

Tilhvers var byltingin? Eða var þetta  kannski engin bylting?

Við þessa svokallaða Búsáhaldabyltingu hafði ég alltaf gert mér vonir um að hún myndi leiða til einhvers góðs! Að við myndum breyta ýmsu. En við vitum hvað gerðist. Við kusum bara fólk með hátt egó inn á þing. Við stöndum því bara ekkert betur, ef ekki bara miklu ver eftir þessir ár. Og svo ætlum við að fara að kjósa aftur.

Hversvegna þá ekki aðra Búsáhaldabyltingu? Afhverju mætum við ekki á Austurvöll svo þúsundum saman til að mótmæla? Til að kjósa svo aftur á þingið?

Hver var tilgangurinn?
Hvar er Byltingin?
mbl.is Vilja umræðu um vantraust í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir Icesave kemur hvað?

>Það er hins vegar alveg ljóst að Björt framtíð og einhverjir þingmenn Hreyfingarinnar munu ekki styðja slíkt vantraust, hvorki á ríkisstjórnina né einstaka ráðherra. Þar af leiðandi kemur það í hlut þjóðarinnar að segja álit sitt og samþykkja vantraust sitt á ríkisstjórnina í komandi kosningum,“ segir Gunnar Bragi.

Það kemur í hlut þjóðarinnar tækifærið að standa saman og mynda sér nýtt þjóðfélag. Það er alveg augljóst að þjóðin getur staðið saman í mikilvægum málum!

Hvað mig varðar er það ekki neinn flokkur sem er með framboð til þingsins.

Hvað mig varðar eru það leiðréttingar á lánamálum og verðtryggingu, breytingar á þinginu þannig að það sé alvöru vinnustaður og fólk hafi traust á því. Sem og miklar breytingar á högum fatlaðra og aldraðra. Og ýmiss önnur sanngjörn og réttlát mál sem ég hef áhuga fyrir.

Hvað mig varðar er svo margt sem skiptir miklu meira máli en ný stjórnarskrá.

Því miður er ég ekki að sjá að kjósa til þingsins sé leiðin til þess að breyta.

 

 

 

 


mbl.is Ekkert vantraust frá Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar vaknið!

Ertu ekki meðvitaður um þjóðfélagið kæri kjósandi?
Ertu ekki þátttakandi í afkomu þinni?
Er ekki frumskilyrði að allir á Íslandi fái að njóta réttinda og afkomu?
Er ekki frumskilyrði að fólk fá notið lífs síns án þess að vera skuldaþræll í gegnum allt líf sitt?

Hvað með íslenska kjósendur? Væri ekki einmitt tækifærið núna? Því ef ekki núna þá er allt eins líklegt að það verði aldrei!

Til að losa burt og breyta flokkakerfinu á Íslandi þarf fólk að koma saman og velja nýjar leiðir!

Það er alveg augljóst í mínum huga að það þarf að endurreisa þjóðfélagið frá grunni.

Skynsemin segir þetta gengur ekki upp!
Skynsemin segir alveg eins og þú sem velur eitthvert eitt framboð þá mun staðan alltaf vera sú að stór hluti fólks mun alltaf vera útundan.

Tökum dæmi:
Hér talað um stærstu flokkana því eins og staðan er núna þá virðist ekki verða mynduð stjórn nema með samsteypu tveggja eða þriggja flokka.

1. Ef Samfylkingin kemst aftur til valda þá mun esb ferlinu haldið áfram andstætt meirihluta þjóðarinnar. Því meirihlutinn vill augljóslega ekki þarna inn.

Áfram mun þessi flokkur hugsa fyrst og fremst að bjargar bönkum og fjármagni í stað þess að setja almenning í fyrsta sæti.

*>Þarna skiptist fólk í fylkingar með og á móti. Ísland áfram í hugarkreppu andstæðna.
Þarna mun sá flokkur halda í ofurvald sitt án þess að starfsháttum þingsins verði breytt. Áfram munum við sjá heiftarlegar deilur fram og til baka. Þjóðin kemst lítið áfram og litlar breytingar fyrir fólkið til betri vegar.

2. Ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst til valda þá mun litlu sem engu verða breytt. Þeir sem hafa fengið að fjárfesta fá að fjárfesta áfram. Sami leikurinn verður í gildi þar sem nokkrir einstaklingar nota peningana sem við almenningur í landinu vinnum til með erfiði okkar. Áfram mun fjármálavaldið ráða í landinu og áfram munu sumir þessir einstaklingar undir vernd spila með peninga fólksins. Áfram mun þessi spilaborg hrynja og sama ruglið tekur við að reisa þjóðina út úr öllum vanda.

*>Þarna skiptist fólk í fylkingar með og á móti. Ísland áfram í hugarkreppu andstæðna.
Þarna mun sá flokkur halda í ofurvald sitt án þess að starfsháttum þingsins verði breytt. Áfram munum við sjá heiftarlegar deilur fram og til baka. Þjóðin kemst lítið áfram og litlar breytingar fyrir fólkið til betri vegar.

Allt þetta rifrildi þar sem enginn kemst áfram með neitt.
Hver höndin upp á móti annarri og enginn vill kannast við neitt eða læra neitt. Því stríðið stendur líka á milli andstæðra fylkinga almennings. Eins og augljóslega er sjáanlegt hér á facebook og á bloggum daglega.

Íslendingar vaknið. Komum okkur saman um að sameiginlega aðstæður til að reisa þjóðina okkar þannig að flest allir geti notið þess á sanngjarnan hátt. Búum til nýtt þjóðfélag á grundvelli mannkærleika, réttlæti og virðingu.

Ef við stöndum saman þá stendur ekkert gegn okkur!

Vaknið! Það er alveg sama hverjir munu stjórna! Áttið ykkur á að báðir stærustu flokkarnir standa fyrst og fremst með fjármagninu í stað fólksins. Og næstu fjögur árin yrðu þá farin fyrir súg og við vöknum enn og aftur upp við vondan draum. Enn verri draum.

So to recap, when a leader loses legitimacy, they cannot generate political power if the people are politically aware.

Hvað með að heimurinn væri þín Liljurós?

Villir hann eða stillir hann?

Oft verður mér hugsað til hvernig mannfólkið velur að tjá skoðanir sínar. Að fylgjast með lífinu í fjölda ára þá hef ég orðið varið við á hversu ótrúlegan fjölda máta fólk tjáir sig. Og hvernig það gerir það. Sem aftur svo leiðir hugann að því hvernig þær skoðanir þeirra verða til. Hvað er að baki einni lítilli skoðun? Er það full reynsla? Eða er það sem aðrir segja manni? Því sumir fylgja eftir mörgu því sem fólk segir frá og hugsar kannski stundum lítið um hvað liggi að baki, eða hvort að skoðaninar séu réttar. Þetta kallast kannski svona að vera meðvirkur.


Stundum fylgir fólk eftir í blindni sem aðrir segja því. Sama þó svo kannski komi í ljós að skoðaninar séu rangar. Svo ef aðrir segja hið gagnstæða þá er tekið sig til að verja skoðanirnar hvað sem það kostar. Alveg sama þó staðreindir koma svo í ljós er fella allan grunninn á skoðuninni. Helgast það til hvernig fólk vill meðhöndla staðreindirnar. Svo eru aðrir sem æða út á ritvöllinn og hrópa upp hversu hinir séu miklir vitleysingar ef þeir voga sér að hafa aðra skoðun á málinu. Þá er gripið til þess að úthrópa manneskjuna, segja að hún sé svona og svona. Hafa gert hitt og þetta, jafnvel þó þær mögulegu gerðir skipti engu máli í samhenginu. Að hún geti ekki haft aðra skoðun vegna meintra annarra gjörða sinna. Svo er líka stundum gripið til að segja að það sé svo vitlaust sem komi frá manneskjunni ef hún vogar sér að vera á móti. Þá er þetta svona viðbrögð eins og fólk sé rökþrota gegn rökfærðum andmælarétti.


Svo hendir það stundum að jafnvel fræðimenn lenda í því að verja ranga skoðun. Skrifa heljarinnar langar greinar um meðvirkni sína og lýsa því fjálglega hvað þeir hafi nú rétt fyrir sér. Það skín í gegnum greinar þeirra. Helgast þetta líka nokkuð til af því að þeir hafa lært að fela sannleikann þegar þeir hrökkva við og verða fyrir honum. Því það er nú einu sinni ekki sama að segja sannleikann eða velja um hvort það að segja frá sannleikanum. Það skal jú verja skoðun sína hvað sem það kostar.


Hugsið ykkur hvað lífinu getur verið vandlifað.
Það er tildæmis ekki það sama að segja sjálfur sannleikann eða velja það að segja ekki frá sannleikanum.


Á sama hátt er ekki það sama að ljúga eða að segja ekki frá lyginni.

Að vera heiðarlegur eða segja ekki frá heiðarleikanum.

Að vanvirða eða að segja ekki frá vanvirðingunni


Ég held dálítið að ef fólk er að velja sér að mótmæla og mynda sér skoðanir að það verði að koma fram af fullum heilindum í gjörðum sínum. Annars gerir það sig svo hvað á að segja, lákúrulegt og aumkunarvert með tjáningum sínum. Hjálpar það ekki til við að gera manneskjuna trúverðuga. Ekki setja sjálfan þig í öngstræti.


Það er alls ekki nóg að segjast segja satt. Eða að segjast vera heiðarlegur, bera virðingu og svo framvegis.


Ég spyr. Er það sanngjarnt að krefjast þess að þjóðfélagið ómi af sönnum manngildum? Í alvöru?

Eða veit fólk alveg nákvæmlega hvað er verið að skrifa um?

Elsku vinur hafðu einlagnina og skynsemina með í för.

Veldu það að viðurkenna ef þú verður fyrir því með að grannskoða skoðun þína og komast að því að þú hefur ekki rétt fyrir þér. Ekki þegja og hætta að tjá þig heldur viðurkenndu staðreindirnar með því að skrifa á gagnlegan máta hvernig málin gætu verið öðruvísi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband