Nýjar hugmyndir inn í "Okkar Ísland" skjalið

Hér er nýjasta skjalið:

Allar nýjar hugmyndir í skjalinu eru í *orange* lit og settar inn á sinn stað með * merki fyrir framan.

Viðbætur fyrir þá sem hafa þegar náð í skjalið:

Blaðsíða 25 til 26: undir liðnum  C) Aðrar aðgerðir

  • 1. Launatrygging og launavísitala.  Þetta er hugmynd sem er að gerjast hjá mér og mun bætast við hana meira í náinni framtíð. Hvernig væri að verkafólk og fólk losnaði alveg við að þurfa að ganga í gegnum samningaferli kjarasamninga? Til þess mætti búa til svokallaða Launavísitölu sem ýmislegt væri sett inn í. Það mætti hugsa sér að gera algjörlega nýjan útreikning á launum þjóðfélagsins með því að setja inn í vísitölu sem virkaði þannig að laun hækkuðu um leið og vöruverð (eða aðrar tölur um verð) hækkaði á íslenskum markaði. Nokkurskonar launatrygging. 
  • Tildæmis mætti reikna út launin upp á nýtt og setja inn útreikninga á hvernig laun yrðu reiknuð. Í slíkan útreikning mætti meta starfstíma jafnt sem tíma sem fer í lærdóm í skólum á hærri stigum og lægri stigum landsins. 
  • Meta þyrfti þannig hvaða stig hvað lærdómur fengi. Og síðan hvað stig hver vinna fengi. 
  • Það mætti gefa ákveðnum flokkum stigagjöf og það mætti byggja þá gjöf þannig upp að þeir sem eru á lægri launum og minna menntaðir gætu hækkað sig upp um stig með meiri lærdóm og jafnvel meiri vinnu sem aukavinnu.
  • Það þyrfti að búa til kerfi fyrir svona. En ég mun sjálfur hugsa meira um þetta mál hvernig þetta gæti verið útfært á næstunni. 
  • Það þarf svo sannarlega að losna við þetta karp og viðræður um kjarasamninga sem kosta líka þjóðarbúið töluverða peninga. 
  • Það þyrfti að búa til kerfi fyrir þetta. Veit að þetta væri erfið og tímafrek vinna að klára, en væri svo sannarlega tími kominn til að tryggja launin í og jafna þau til stórra muna í landinu! Svo vinna í svona dæmi væri sannarlega þess yrði þó hún gæti tekið nokkra mánuði!  Það mætti byrja á grunngerðinni fyrst og búa til flokkana eftir tildæmis með skólaeiningar í fögum til hliðsjónar.

 

  Blaðsíða: 27

  • 12. Friðun landsvæða og náttúru

Stutt og lagott til að byrja með.

Nauðsynlegt er að taka alveg fyrir að nýjar virkjanir verði settar upp. Banna algjörlega að land fari undir vatn (stýfla eða lón af mannahöndum). Skoða þarf betur aðrar leiðir í virkjunarmálum eins og jarðhita. En af honum eigum við nóg af! Nýting orku og nýjar virkjanir á þann veg skuli helst vera settar í gang að þörfum íslendinga sjálfum. Tryggja þarf jafna nýtingu orkunnar þannig að allir þegnar geti notði til jafns. Loka fyrir einkaframkvæmdir og kaup einkaaðila í orkuðiðnaði (alla vega tímabundið). Auðlindir eru eign allra landsmanna.

Blaðsíða 31: í liðnum Fasteignamarkaðurinn

 

  *Ný hugmynd*:

Hækka lántökugjald úr 1% í 2% af íbúðum í dýrari flokkum. Mætti hugsa sér að ef íbúð er á 30 milljónir eða meira þá kæmi þessi hækkun í framkvæmd.

Mögulegt kannski að nota á stimpilgjaldið og hækka það úr 1.5% í 2%?

Efnaðri einstaklingar sem ætla sér að kaupa dýrari íbúðir ættu alveg að geta borgað hærri gjöld við kaup á íbúðum

 

_______________________  Okkar Ísland  __________________

Hér er 37 blaðsíðna skjal sem er með grunnhugmyndir leikmanns um stjórnsýslu og viðréttingu landsins úr kreppunni.

Ath. "Okkar Ísland" byggist á því að íslendingar taki á málum sínum sjálfir!

Hér er 1.03 af "Okkar Ísland" skjalinu í Word  .doc (skjalið í heild með viðbætum og nýjum hugmyndum á réttum stað)

http://www.mediafire.com/?ndlrvyyzjyn

Hér er 1.03 af "Okkar Ísland" skjalinu í nýrra Word .docx skrá (skjalið í heild með viðbætum og nýjum hugmyndum á réttum stað)

http://www.mediafire.com/?2yego20ndmz 

_________________________________________________________________


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband