Fyrir áhugasama

Kynningarfundur verður haldinn á Borgarahreyfingunni

 

Klukkan 20.00 í kvöld þriðjudaginn 10. mars ætlum við að halda kynningarfund í Iðnó. Verið velkomin að koma og hlusta á stefnumálin okkar og umræður um þær.

Til máls taka Herbert Sveinbjörnsson, formaður, Birgitta Jónsdóttir, varaformaður og Hjálmar Hjálmarsson, frambjóðandi.

Opið verður fyrir spurningar að því loknu.

Borgarahreyfingin er að byggja brú fyrir þjóðina inn á Alþingi óháð fjórflokknum. Við mótmæltum dómgreindarleysi, ráðaleysi og getuleysi í kjölfar bankahrunsins. Nú brettum við upp ermar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband