Guð gefur manni hneturnar en hann brýtur þær ekki fyrir mann

Allt sem er vert þess að vera gert er og þess vert að vera vel gert.

úr frétt>„Mikil eftirspurn hefur verið eftir jarðnæði til búskapar á undanförnum árum en vegna ónógs framboðs af ódýru lánsfjármagni samfara háu jarðaverði hefur fólk sem hyggst fara í búskap ekki séð sér fært að fjárfesta í landi til búrekstrar. Með betri nýtingu ríkisjarða til búrekstrar er mögulegt að mæta sjónarmiðum þessa hóps, efla búskap í hinum dreifðari byggðum og einnig myndi ríkisvaldið sýna ábyrgð gagnvart nýliðun í landbúnaði og sjónarmiðum fæðuöryggis,“ segir í tillögunni.

Sjálfsagt gott mál. Hinsvegar er það á hreinu að: ríkisvaldið ætti að gera stórátak í því að styðja undir Lanbúnað. Sem og önnur verkefni við nýtingu auðlinda úti á landi. Fjármagn ætti þannig að koma frá ríkinu í sérstakar verkefnastofur úti á landi til þess. Líka væri hægt að setja upp sérstakar atvinnustofur samfara því.

Aðeins öflug stýring fjármagns yfir í verkefnastofur landstfjórðunga á möguleika að setja í gang heildstæða eflingu á landbúnaði.  

Til þess að gera hutina fyrir alvöru vel er best til fallið að setja eftirfarandi, fyrst á einum landsfjórðingi og svo á hinum líka:

Sjálfbærniþorpið

http://samfelagvesturs.weebly.com

 


mbl.is Ríkisjörðum verði komið í notkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Til að styðja við ný verkefni væri líka vel hugsandi að lánsfjármagn komi frá sérstökum  samfélags-sparisjóðum í gegnum verkefnastofuna. Lán með nær engum vöxtum.

Sá sem setur upp verkefni leitast eftir stuðningi (í gegnum verkefnastofuna) frá nokkrum aðilum að spara peninga inn í sparisjóðinn til að eiga möguleika á að fá lán.

Eins mætti vel hugsa sér í tengslum við svona að setja í gang sam-vinnu fyrirtæki (alvöru) þar sem hlutafé væri 1 atkvæði á mann.

Guðni Karl Harðarson, 28.2.2012 kl. 12:55

2 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ég átti auðvitað við að hver sá sem á hlutafé hafi 1 atkvæði sem og vinnur hjá fyrirtækinu.

Guðni Karl Harðarson, 28.2.2012 kl. 12:58

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hugmyndin að sjálfbærniþorpi er frábær Guðni og vonandi tekst þér að vekja athygli á þessari hugmynd, svo hún verði framkvæmd.  Svo er líka gott mál að sem flestar bújarðir fari í ábúð.  Gott að það er allavega komið til tals.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2012 kl. 14:57

4 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Þakka þér Ásthildur. Yfirleitt hefur hugmyndin hlotið góð viðbrögð. Ég er að vonast einmitt eftir því að vekja fyrir alvöru athygli á henni!

Það er líka gott mál að sem flestar bújarðir fari í ábúð. En það þarf að líka vera til ALVÖRU stuðningur við það. Sem ég er einmitt að víkja að í bloggfærslu þessari.

Guðni Karl Harðarson, 28.2.2012 kl. 15:24

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

JÁ ég veit og ég er alveg sammála þér með það.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2012 kl. 15:59

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Get ekki hugsað á þessum nótum,þótt sé allra athygli virði. Meðan þessi stjórn vofir yfir sem leggur á ráðin og beinlínis tjaldar öllu þótt falskt sé,til að leggja þjóðríkið af. Guðni ég vildi að af þessu yrði.

Helga Kristjánsdóttir, 5.3.2012 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband