Föstudagur, 13. febrúar 2009
Varúð!!!!! Gott fólk ekki falla á glansmyndina
Fyrsta stig kosningabaráttu frambjóðenda flokkana er hafið. Að láta sjá sig út um allt.
Nú förum við að byrja að sjá andlitin af pólitíkusunum í sjónvarpi eins og ýmsum þáttum. Nú ætla þeir að fara að sýna á sér sparihliðina fyrir kjósendurnar. Gott dæmi að þeir séu í startholunum!
Svo dæmi sé tekið: Ég hef séð hann Geir, Össur, Ögmund og fleiri leika góða kallinn.....
Varúð! Kosningarnar eru að fara í gang! Við eigum eftir að sjá fleiri glansmyndir á næstunni! Við eigum eftir að sjá pólitíkusana koma fram á ýmsum stöðum til að reyna að sýna á sér sparihliðarnar.
Gott fólk ekki falla á glansmyndina!
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Fjölmiðlar, Trúmál og siðferði, Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:20 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.