Fimmtudagur, 29. janúar 2009
Stjórnlagaþing????? og útkoma í sveitarstjórnarkosningum 2010?
Enn ein sókn í vinsældir og gert til að friða öll öflin sem hafa verið að minnast á að fólk eigi að kjósa fólk en ekki flokka.
Halda menn virkilega að stjórnlagaþing geri eitthvað fyrir fólkið í landinu. Sveitjarstórnarkosningar 2010? sem framsókn talar um. Eru menn ruglaðir? Halda þeir virkilega að við munum ná einhverjum alvöru breytingum fram í landinu með því að draga útkomuna þangað til þá?
Haldið þið að útkoma stjórnlagaþings sem 2/3 alþingismenn verða að samþykkja geri eitthvað fyrir fólkið einmitt vegna þess að engin útkoma hefur hingað til verið umræðum á breytingar á stjórnarskrá?
Það þarf breytingar strax! Vegna þess að breytingar á Stjórnkerfi landsins á að nota strax til að geta fyrir alvöru tekist á við vanda landins. Ekki munu flokkarnir geta losað okkur út úr vandanum og skuldunum.
Áttum okkur á flokkarnir munu aldrei samþykkja breytingar þær sem við viljum!Áttum okkur á að stjórnlagaþing mun ekki breyta stjórnarskráinni eins og fólkið í landinu vill!
Besta leiðin er að krefjast skilyrðislaust að því verði breytt fyrir næstu kosninar og sett inn einfaldega að fólk megi kjósa fólk á atkvæðaseðli!
X við Ég vil fólk en ekki flokka!
Það er sem ég mun leggja til við Forseta og fleiri!
Ég vil breytingar á næstu 3 mánuðum svo að fólkið geti tekið sig til við að rétta við hag almennings í landinu strax!
Áttið ykkur á að breytingar á stjórnarskrá þurfa að koma strax (á næstu 3 til fjórum mánuðum) til að við getum fyrir alvöru tekist á við vandann! Áttum okkur á að flokkarnir í landinu munu aldrei geta tekið þær ákvarðanir sem fólkið vill að verði gerðar! Flokkar með ólíkar skoðanir og ólíkar áherslur!
Samþykkja stjórnlagaþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Fjármál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 18:05 | Facebook
Athugasemdir
Ég ætla aðeins að svar mér sjálfum.
Ég tek það sterklega fram að ég hef áhuga fyrir því að flokkarnir í landinu fari burt! Það munu þeir aldrei samþykkja á stjórnlagaþingi!
Það er nefnilega málið! Útkoma á stjórnlagaþingi árið 2010 mun aðeins gefa smávægilegar breytingar. Þær breytingar sem þingmenn vilja sjálfir samykkja!
Að fulltrúar á stjórnlagaþingi verði að eiga sitt undir ákvarðanir þingmanna en ekki fólksins sjálfs? Tómt mál!
Guðni Karl Harðarson, 29.1.2009 kl. 18:23
Svo innilega sammála hverju orði.
Haraldur Davíðsson, 29.1.2009 kl. 18:24
Stjórnarskrá Íslands 1947 býður upp Þjóðveldi [þjóðvöld] sem greinist í Forsetavald [þjóratkvæði] og Löggjafarvald. [þjóðaratkvæði].
Frá Forsetaveldinu koma framkvæmdavöldin [velur ráðherra] [sameiginlegar þjóðarframkvæmdir] til skýrgreiningar og aðhalds hjá Löggjafarvaldinu.
Frá Löggjafarvaldinu kemur Dómsvald sem Forsetavald skipar.
Klíkuskapur frá 1947 hefur réttlætt þess einföldun á nýtingu stjórnarskrár út í yztu æsar.
Þögn Þjóðar, Forseta, lagasmiða:alþingismanna.
Hér hefur því alltaf ríkt ráðherra einræði í reynd en vald eins ráðherra er skilgreint með lögum utan stjórnarskrár, samkvæmt stjórnskipunarlögunum: Stjórnarskránni.
Leitum ekki langt yfir skammt. Tækifærisinnar kunna ekki að lesa og hafa því ekki farið eftir stjórnarskránni að flestu leyti síðan 1947.
Júlíus Björnsson, 29.1.2009 kl. 18:38
Var að lesa þetta á Blogginu þínu. Mjög þarft innlegg
Eitthvað er linkurinn þinn ekki að virka:
Ég er sannarlega sammála þér með að það hefur ríkt hér ráðherra einræði
Guðni Karl Harðarson, 29.1.2009 kl. 20:21
Stjórnarskránni
Júlíus Björnsson, 29.1.2009 kl. 22:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.