Fimmtudagur, 29. janúar 2009
Það ættu allir að vera svona!
Náungasamstaða og kærleikur það er málið!
Ég varð fyrir því að verða Bensínlaus á leiðinni heim úr vinnu. Rétt á móts við Árbæjarsafnið (hinum megin við götuna). Ég varð ekki svo lítið hissa að maður í fyrsta bílnum sem kom að þegar að ég var búinn að keyra út í vegkantinn, stoppaði og bauð að keyra mér til að kaupa Bensín. Hann keyrði mér alla leið upp á Shell stöð uppi í Hraunbæ. Beið meðan að ég setti bensín á brúsa og keyrði mér síðan aftur til baka. Beið eftir að ég hellti á bílinn og að hann færi í gang.
Frábært! Slíkt fólk er víst ekki á hverju strái hér á síðustu og verstu tímum. Verst að mér láðist að fá nafn mannsins. En mér finnst svo sannarlega vert að minnast á svona!
Við fórum að ræða saman. Sagði hann mér að væri atvinnulaus Gröfumaður. Guð hvað hann var mér sammála um allt sem er í gangi hér í þjóðfélaginu!
Málið er að það mun verða Ný Lýræðisvakning í gangi! Það er fullt af fólki sem vill alvöru breytingar!
Áfram Ný Lýræðisbarátta!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.