Mánudagur, 1. desember 2008
Hugmyndafræði og hvatning til viðsnúnings stjórnmálanna með breyttu stjórnkerfi
Hugmyndafræði og hvatning til viðsnúnings stjórnmálanna að breyttu stjórnkerfi
Lífskerfið er FIVE
Fyrst vil ég byrja á að koma inná að ég er aðeins leikmaður en ekki lærður maður eða vísindamaður í lífi mínu hér á Jörð. Þannig getur það komið fyrir að ég verði ekki alltaf nákvæmur í þessum skrifum. Hinsvegar með því að vera leikmaður get ég öðlast rétt til að nota mál mitt á þann veg að sem helst hinn almenni lesandi skilji.
Hugmynd þessi byggist á að snúa við því ferli sem maðurinn er í dag. Henni er ætlað að ná fram framtíð sem væri hagstætt fyrir okkur alla Íslendinga. Athugið að ég ætlast ekki til neins hagnaðar eða ávinnings að koma upp með þetta nema aðeins ef einhver vill lesa vandlega og vellta því fyrir sér.
Kjarni málsins er sá að í þeim ólgusjó sem er í gangi á Íslandi eru það ekki bara stjórnmálamenn og ráðamenn sem ættu að breyta hugsanagangi sínum. Heldur fólkið sjálft líka. Það er margt í valdkerfi íslendinga og samskiptum íslendinga sem betur mætti fara.
Það má ekki telja mig naive eða barnalegan að skrifa þessa hugmynd alveg frá grunni. Þannig geri ég tilraun til að sýna fram á frumtengsl allra þátta þess sem ég skrifa um hvernig þau tengjast heildarmyndinni. Þetta er málefni sem ég hef verið að skoða í gegnum lífið og hef komist að er rétt! Ég hef neitað mér um ýmislegt í lífinu til að komast að minni niðurstöðu. Þeir sem þekkja mig og sjá hvernig ég lýt út geta betur séð það.
Allt til að öðlast skilning.
Þannig komst ég að minni niðurstöðu um tilgang lífsins hér á Jörðinni. Ég sterklega tel það vera samtvinnig allra skilningarvita okkar til tjáningar. Tilgangur lífsins er þannig tjáning og sköpun.
Svo ef þú vilt þá getur þú skoðað sem þú ert að gera með hliðsjón til þessa.
Hér eru dæmi sem ég myndi ekki gera og geri ekki sjálfur í samskiptum við annað fólk:
1. Aldrei veita öðrum skaða eða á nokkurn hátt skaða annan mann
2. Aldrei eyðileggja umhverfi mitt á neinn hátt! Hvort sem er náttúran eða kjarni í samfélagi því sem ég lifi í eins og borgin tildæmis. Í þessu fellst tildæmis brjóta niður vegg eða annað, krassa út, henda rusli osfrv. Eyðileggja náttúruna, tún eða engi úti í náttúrunni. Slík kemur alltaf til baka á mann sem neikvætt og svo áfram superneikvætt.
3. Aldrei verða til þess að annar maður missi athygli vegna gerða minna. Þannig tildæmis tala í Farsíma á meðan að ég keyri sem getur valdið skaða eða ákeyrslu osfrv.
Hér eru bara lítil dæmi en hægt að finna fullt af fleirum. En að skrifa um þau sýnir tilganginn með hvernig við getum beytt okkur á réttan hátt í samskiptum við annað fólk.
Þetta er bara svona einföldun. Ekki halda bara að þetta megi sjá með að skoða eingöngu það positiva eða negativa í lífinu. Allt er uppsöfnunar háð líka.
Málið er hegðunarmunstur sem hefur viðgengist á Íslandi verður að snúa við. Til að mynda er til ákveðinn tilgangur fyrir því öllu sem við viðhöfum hér í lífi okkar. Öll höfum við mismunandi væntingar, en oft hugsum við ekki nógu vel um afhverju við sækjumst eftir því sem við viljum ná fram.
Nú legg ég fram hugmynd mína. En áður en að ég fer út í hvað við þurfum að gera til að breyta Íslandi þarf að útskýra þessa hugmyndarfæði til að getað notað hana okkur í hag.
Ég held að við getum verið sammála að frumþarfir okkar mannanna sé að hafa
1. Nóg fæði
2. Nóg klæði og
3. Þak yfir höfuðið.
Síðan getum við í framhaldinu búið til hluti til að gera okkur lífið léttara. Og þá fyrir alla þegnanna.
Allir menn eiga að geta notið þessara þessara þarfa jafnt og án erfiðleika. Það er mín skoðun að það sé mjög skammarlegt að okkur mönnunum hafi mistekist þetta. En hversvegna hefur þetta mistekist? Vegna þess að við höfum svo ótrúlega mismunandi þarfir. Þannig vill annar þetta og hinn hitt osfrv. Sem sagt, maðurinn geri hvað sem hann getur til að ná því sem hann langar í, án þess að taka afleiðingunum.
Nú ætla ég að gera tilraun til að sýna fram á einfalda (en síðar flóknari) hugmyndafræði fyrir fólk til að hafa til hliðsjónar.
Við lifum á Jörðinni og eigum að teljast þær verur sem er mest vitrænar. En við gerum okkur ekki grein fyrir því að allt það sem við gerum á okkar Jörð skiptir máli. Það smæsta og það stærsta.
Svo einfalt er það að byrja útskýrinar þær sem ég skrifa með því að biðja ykkur að skoða Jörðina í heildarmynd þannig:
· Á Jörðinni eru 4 áttir
· Við gleymum þeim stað sem er á milli þ.e. miðja þess sem er það 5
· Ef við setjum okkur inn í þetta 5ta þá sjáum við auðvitað áttirnar í kringum okkur
· Og alltaf eins ef við færum okkur til 4 átti + það fimmt, staðsenting eða miðja
· Á Jörðinni er alltaf ákveðið ferli í gangi í baráttu orku og efnis sem sameinast og sundrast.
· Eitt stækkar meira og meira, annað minnkar meira og meira og svo framvegis
Maðurinn á Jörðinni lifir innanum öll þessi kerfi. Þannig hefur hann áhrif á umhverfi sitt. Alltaf á stóran og smáan máta. Sama hvað hann gerir. Þannig að ef ég vill gera eitthvað verk hefur það áhrif á einhvern máta. Tildæmis það að ég er að skrifa þessa hugmynd og senda hana yfir Internetið hefur áhrif. Alltaf áhrif, hvort sem þau eru lítil eða stór. En samt geta stór áhrif minnkað og lítil áhrif stækkað.
Nánar þannig: Við fæðumst og það fyrsta sem við gerum er að taka andann. Strax farin að hafa áhrif þó smá séu. Það næsta sem við gerum er að gefa frá okkur hljóð osfrv. Sem sagt við byrjum strax að nota skilningarvitin okkar við fæðingu. Við notum 5 skilningarvitin: nefið, augun, eyrun, fingurna og munninn.
En hvað skiptir þetta máli? Ég skal útskýra það.
Í gegnum aldirnar hafa mennirnir lifað í eilífri baráttu. Einn vill verða valdamikll, annar forríkur og þriðji ráða yfir mönnum í trúnni, osfrv. Alltaf hafa kerfi þau sem við mennirnir búið við byggst á einhverjum af þessum þáttum. Hvar sem skoðað er hefur þetta komið fram. Í krafti einhvers afls sem við búum til fyrir þess eða þessa hags sem ráða eru menn sendir út af örkinni til að hjálpa og styrkja þess sem valdhafinn vill ná fram. Í staðinn er fólki lofað kannski einhverjum völdum, eða peningum eða einhverjum vinatengslum og áhrifum. Þannig eru menn sendir til að afla einhverri trú fylgis, einhverri stefnu fylgis, einhverjum samingum til auðgunar og eða sendir út af örkinni út í stríð.
En síðan erum við svo auðtrúa að við trúum svo miklu sem okkur er sagt. Við gerum mjög oft sem okkur er sagt. Við viljum vera eins og hinir. Við viljum ná fram einhverju sem hópeflið segir að gera.
Hverjar eru svo afleiðingarnar? Nú manninum hefur tekist að drepa milljarða manna í stríðum eftir stríðum útaf trúarbrögðum, peningum eða aukins valds. Einnig að eyðileggja heiminn sem við lifum í. Við höfum alltaf verið að taka án þess að gefa mikið til baka. Hægt er að nefna ótal dæmi.
Nú er þetta ekki allt í lagi? Nei. Málið er að þegar einhver vill einn hlut og nær honum fram þá vill hann meira og stærra. Og við hin verðum fyrir missi. Það er alls staðar sama niðurstaða.
En nú ætla ég að gera tilraun til að skýra á einfaldan máta afhverju þetta skiptir máli. Og hversvegna við þurfum að meðtaka þetta til að geta skilið á hvaða hátt þetta skiptir máli í því hagkerfi sem við þurfum að byggja upp.
Nú veist þú eflaust og hefur lesið um negative (neikvætt) og positive (jákvætt). Það skiptir máli en ekki á þann hátt sem þú eflaust heldur! Munið að ég talaði um 4 áttir og það 5ta sem er á milli. Það sama kemur fram í lífinu niður í smæstu mynd og kemur svo sannarlega við lífi okkar mannanna!
Þannig: Tildæmis getum við tekið
1. Positive
2. Super Positive
3. Negative
4. Super Negative
5. Og fimm allt sem er á milli (tildæmis maðurinn)
Samtvinning allra þessara þátta skipta máli! En ekki bara Positive og Negative! Það er auðvelt að sjá þetta ef hlutirnir eru settir í samhengi.
Tildæmis: ég kaupi mér einhver föt eins og peysu. Aðaltinganginum er að halda á líkamanum hita sem er positive en síðan hefur eitthvað áhrif til þess að peysan verður negative, tildæmis með að ég rek mig í utan í eitthvað og það kemur gat (postive verður negative) Nú við vitum þetta auðvitað og það sem við gerum til að reyna að koma í veg fyrir svona er tildæmis að vera betur vakandi og einnig gera Peysuna sterkari og síður skemmanleg ef ég rek mig í. Svo ég geri allt til að blessuð peysan þjóni líkama mínum í mörg ár. Super Positive
Annað dæmi:
Ég á smá peninga og langar að setjast að á Bóndabæ. Ég kaupi bæ og jarðskyka. Ég byggi upp öflugan landbúnað og gengur mér allt í haginn. Ég geri positive að superpositive (þ.e. byggi upp). En allt í einu verða nokkur ofsa óveður í röð og öll uppskeran er ónýt. Sem sagt, negative áhrif á heildina sem geta orðið supernegatvie.
Þannig getur þú séð að allir þessir þátta skipta máli. Auðvitað vil ég búa til eitthvað sem er meira viðvarandi og öflugra sem endist lengur. En hvað ef einhver kemur sem gerir mér það ókleift?
Ég er að reyna að skýra það út að ef eitthvað er tekið af þér þá verður þú fyrir því að finna fyrir neikvæðum atburði gegn þér. Þannig getur þessi neikvæðari atburður haft mjög sterk áhrif á líf þitt.
Annað dæmi:
Ég mæti manni sem verður mér eitthvað ósammála og tekur sig til og slær einverhn annan og sá skaðast. Honum finnst hann hafa gert vel fyrir sig. En hvaða áhrif hefur það á hann? Nú kannski nýr óvinur sem borgar fyrir sig á einhvern hátt seinna.
Nú ætla ég að skýra út afhverju þetta skiptir máli.
Það er vegna þess að í hvert sinn sem einhver tekur af öðrum þá hefur sá sem tekið var af þá tilfinningu að hafa orðið fyrir minnkun eigna eða valds. Missi. Sá sem tekur hefur náð smá positive en ég hinn sem missti varð fyrir smá negative.
Sama hátt ef einhver ætlar að skipa þér fyrir og hafa vald yfir þér. Þá finnst þér vera ógnað og þú ert ekki sáttur. Nú sá sem sækist eftir valdinu af þér (og öllum hinum) hann gæti lofað þér einhverju á móti til að sefja þig og fá þig í lið með sér. Á meðan eru bara allt aðrir sem eru ekki sáttir við þetta og vilja ekki meðtaka þetta vald. Þannig myndast togstreyta.Sem getur svo magnast!
Semsagt: Sá sem vill vald og tekur vald fær vel fyrir en hinn sem gefur eftir verður fyrir því að vilja fá sitt til baka. Sama er með peninga!
Vald og peningar á fyrst smáan og síðan stækkaðan hátt. Hvar heldur þú á skalanum postive og negative sé? Eru allir ánægðir?
Þannig vilja valdamenn ráða yfir þér og halda því áfram.
Málið er að við mennirnir höfum gleymt að fara eftir því þegar að við byggjum upp samfélög. Þau hafa undanrtekningarlaust verið bundið því að einhver og einhverjir hafa völd. Tekið sem mest fyrir sig en ekki skilað nógu til baka til fólksins.
Ertu einhversstaðar þarna sem ert óánægður að einvher ráði yfir þér. Hver er kominn til með að segja að þessi manneskja eigi að ráða yfir þér eða sé eitthvað betri til þess? Og eigi að gera þig óánægðan?
Málið er að við fólkið þurfum að gera róttækar breytingar til að breyta stjórnun. Þannig þarf að byggja sýbreytilegt vald og lítið vald innanum stærra vald. Valdminnkun og Valdskipting. Draga úr valdi og skipta um vald miklu oftar. Kjósa fólk en ekki flokka. Skipta valdi í smærri einingar úti á landi og síðan stærri einingu sem heldur utanum lífi fólksins í landinu. Byggja upp vald sem er byggt upp á staðreindunum í þáttum lífsins.
Eins og ég hef verið að skrifa um þá má sjá hversvegna ekkert af þeim stjórnmála kerfum sem við höfum byggt upp hefur virkað!
Einföldun! Þannig var kommúnisti byggður upp á alræði öreiganna. En í reyndinni urðu til menn með mikið vald sem notuðu það sér sjálfum til framdráttar og gleymdu frumþörfum mannsins að öll stjórnun á fyrst og fremst að snúast um að sjá til þess að þegnanir hafi jafnt til fæðis, klæða og húsnæðis. Þannig varð til lögregluríki sem snérist um embættismenn og þarfir þeirra til að beyta fólki valdi og yfirang. Hefta frelsi þess til góðra verka. Verka sem þó ættu ekki að vera einstaklingbundin.
Á sama hátt hefur kapítalismi og einstaklingshyggja ekki virkað. Í þeirri stefnu hafa einvherjir menn ráðið yfir fólkinu. Notað aðstöðu til að sjá þess að þeir sem eru þeim fylgjandi eigi nóga peninga en allt annað er aukaatriði eins og sjá til þess að allir þegnanir gangi jafnt að borði varðandi fæði, klæði og mat. Peningamennirnir áttu að sjá til þess að hitt fólkið hefði peninga en hafa notað sér aðstöðu sýna til að verða sjálfir sem ríkastir. Ekki gengur það upp. Því allir vildu þeir verða ríkir og notuðu til þess öll meðöl. Settu af stað fyrirtæki og fengu lán til að kaupa önnur fyrirtæki. Færðu peninga á milli fyrirtækjana. Bjuggu til dummy væntingar og hækkuðu verðmæti eigna langt yfir raunveruleikann. Notuðu svo sér aðstöðu sýna til að ná fram fullt af peningum fyrir sjálfan sig en skyldu almenning eftir. Síðan vildu allir gera það sama, fjárfesta, lána og fjárfesta áfram. Svo kom að því að einhver komst í þrot og gat ekki lánað meira. Þá fór hinn sem þurfti lán til að halda veltu líka í þrot vegna þess að hann gat ekki fengið meiri lán. Og svo koll af kolli.
Þetta er ekki alhæfing, en ég hef þá skoðun að allir þessir Hagfræðingar í gegnum aldirnar og tíðina hafa gleymt því mikilvægasta!: Að allir þegnar þjóðfélags eig að koma jafnt að lífinu og uppbyggingu lífs þeirra. Þeir hafi ekki séð að vald á aðra hendi gerir neikvænið á hina hendina.
Láttu þér ekki detta það í hug að ég hafi áhuga að búa við svona kerfi. Þar sem fólk er að borga há vexti. Þar sem fólk skuldar í íbúðum sínum allt sitt líf og þarf að borga verð íbúðarinnar margfalt meira en kaupverð. Þar sem fólk kaupir og kaupir. Skuldar og skuldar. Geta ekkert eignast án þess að skulda. Þar sem fólk kaupir bíla á lánum og er að borga af þeim margfalt verð þegar að lánið hefur verið borgað upp. Þar sem fólk sem það vill reynir að hagnast eins mikið og þeir geta af öðrum einstaklingi án þess að taka afleiðingunum eða hugsa um þær!
Ég segi að við eigum að nota ekki bara hugsun í heilanum til að ná fram lífsþörfum. Notum öll þau skilningarvit sem við getum.
Við þurfum að byggja upp kerfi sem byggir á Lífsþáttunum því allt er þetta samtvinnað.
FIVE=
Jörðin með áttirnar fjórar og fimmta - staðanum á milli sem þær eru séðar (getur verið maðurinn)
Maðurinn með a. tvær hendur, tvær fætur og búknum á milli. b. fjóra fingur + þumalfingur þann fimmta. c. fimm skilningarvit= augu er sjón, eyru er heyrn, nef er lykt, fingur er snerting og munnur sem er bragð (og tal en í lagn flestum tilfellum þarftu að nota einhver af hinum skilningarvitunum til að geta talað).
Allt á Jörðunni er hægt að skoða með hliðsjón til þessa! Maðurinn ætti að búa til möguleika fyrir fólkið sem lifir á Jörðinni með því að nota lífsþættina í umhverfi þess!
Slíku verður sem best ná fram með síbreytilegu valdi og frá smáu valdi yfir í stór vald. Þess vegna hef ég komið fram með þessa hugmynd mína með Okkar Ísland!
Ef við nú stjórnin segir af sér og kjósa ætti til nýjar stjórnar með nýjum mönnum úr stjórnarflokkum, þá mun alltaf einvherjir vera óánægðir! Óánægja sem gæti magnast upp negativlega og erfiðara verður að rétta landið af í heild. Þannig gæti landið farið í gjaldþrot hvort sem með núverandi stjórn eða allt eins með nýrri stjórn! Nú mundu margir segja að það ætti að gefa nýjum mönnum og flokkum kost á að gera sína tilraun til að rétta landið við úr efnahagskreppunni. Ég væri sammála því eingöngu ef ekki væru nógu margir til að vilja nota nýtt kerfi með síbreytilegu valdi og án stjórnmálaflokka. Það næst besta????? Þannig er að vera gefa öðrum tækifæri sem hinum hefur mistekist. Sem gæti þ´´o allt eins farið á hvorn vegin sem væri. En með núverandi stjórn við völd er ekkert annað fyrirsjánlegt en völd þeirra sem vilja halda völdum og viðhalda sama kerfi fyrir vissan flokk manna sem ættu að vera yfir hinum í þjóðfélaginu. Auðmanna og frjálshyggju. Það verður að gera sér grein fyrir að slíkt gengur ekki upp! Nú hefur það sannast að þessi stefna sem hefur viðgengist í amk. 20 ár hefur mistekis, vegna mistaka manna sem voru gefnir lausan tauminn. Því eiga stjórnvöld einfaldlega að segja afsér en ekki viðhalda því sama að mistakast aftur og aftur í sama kerfi!
Þessvegna ættu stjórnmálamenn að segja afsér og leyfa fólki að byggja upp kerfi sem notar þætti lífisins til framgangs fyrir alla menn. Gefa öðrum tækifæri til að breyta til og ná hagstæðum árangri! Það væri frábært að við á Íslandi yrðum fyrstir til þess!
Áfram Ísland! Okkar Ísland!
skoðið líka:
hreinni23.blog.is: Okkar Ísland
eða: hreinn23.wordpress.com: Okkar Ísland
og hreinn23.wordpress.com/about/
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Stjórnmál og samfélag, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:54 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.