Fyrirséð!

Það er löngu ljóst að ekkert gerir neitt fyrir launamanninn neinir kjarasamningar. Alveg ótrúlegt að það skuli verið að semja um eitthvað sem þegar er löngu farið í verðlagið. 

Alltaf þessi algjöra endalausa vitleysa ár eftir ár. Gervi barátta á milli stéttarfélaga við ríkistjórn.

Það er alveg augljóst að það þarf að finna nýjar leiðir til að breyta kerfinu. Tildæmis hæfist það alveg með sérstakri festingu á launum sem héldust í hendur með launum við samvinnu fólks í sköpun verðmæta. Losum takið sem gervipeningar hafa á launamanninum með spjalli krónunar og losum hana undir oki vísitalna. Tökum burt spákaupmennsku frá krónunni og raungerum hana með því að skipta henni niður í 4 til 5 verðmætagjaldmiðli í tengslum við verðmætasköpun og laun.

Höldum eiginlegri krónu aðeins sem viðskiptamiðli á gjaldeyri og slíkum viðskiptum á vöru og þjónustu milli fyrirtækja erlendis og innanlands.

Þetta væri bestu kjarabætunar. 

 

Hér er ein stutt vísa sem ég bjó til af tilefninu og varð til á ca. klukkutíma:

Drafandi uppi á berginu vofir doðinn,

og dáist að vonleysi okkar hér,

um fingurna verið lengi loðin,

og losar ei takið á þér.

 

Í hjarta mínu held ég þó,

að hamingjan taki tímann,

og  hengi á okkur hugarfró,

því þó hörð sé vinnst á endanum glíman.

 

þorum að breyta með tungum í takt,

teflum við  ókomna tíma,

þeysum á völlinn  þar stöndum við vakt,

þurrkum burt allan híma.

 

Það er spurning hver á að standa við hvað?,

hversu lengi eigum við að bíða?

Ég segi þér ákveðið það?

þessi tími er alltof lengi að líða.

 

Ég ætla þó að bæta við þessa fleiri erendum.

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Skora á stjórnvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Takk flott færsla. Nú komum við þessum skarðræðis stjórnvöldum frá og nýtt ferskt lið inn á þingið takk!

Sigurður Haraldsson, 12.1.2012 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband