Þó leiðin sé löng og leiðin sé ströng þá vinnst á endanum sigur

 

Góðan og hugljúfan dag þennan fyrsta dag ársins 2014. Megi nýtt ár verða okkur jákvæður hvati.


Litið yfir farinn veg

Árið 2013 var að mörgu leiti ánægjulegt og árangursríkt hjá mér. Ég vann og lagði til ýmsar hugmyndir út í þjóðfélagið. Sumar hverjar sem urðu að minnsta kosti að hluta til að veruleika. Aðrar hverjar sem þó voru hugsunarkveikja fyrir fólk. Ég bjó til sérstök skjöl sem ég sendi frá mér til aðila í bæjarfélagi og aðila hjá stjórnvöldum. Ég tel að það efni sem ég sendi frá mér hafi verið góður hugsana hvati til þessara aðila, þó viðbrögðin hafi sum hver verið misjöfn. Ég virði það vel að hafa þó fengið að mæta á fundi vegna hugmynda minna. Sérstaklega hérna í bæjarfélaginu sem ég bý.

 

Á afmælisdaginn minn 23. Júlí setti ég síðan í gang vefsíðuna “Hvetjandi” sem hugsuð var til þess að vera hvati að jákvæðni og ýmsum fréttum og klausum tengdu því að vera jákvæður. Vefsíða sú hefur tekið þó nokkrum breytingum síðan að hún varð til og hefur verið að þróast áfram. Hugsunin hefur þó alltaf verið sú að hafa hana dálítið öðruvísi en önnur frétta eða vefrit á vefnum. Hugsunin hefur verið líka að reyna að halda henni einfaldri.

 

Það hefur að sumu leiti verið ánægjulegt að fylgjast með þjóðfélags umræðunni og hafa fengið tækifæri til að tjá mig í henni á jákvæðan hátt. Þó vissulega ég hafi fengið blendnar tilfinningar til ýmissa þeirra atriða sem komu þar fram. Sum hver þessara atriða þar sem reiðin og ávirðingarnar gengu þvert á milli.

 

Að fylgjast með hefur þó verið að mörgu leiti sérstakt. Þar á meðal að fylgjast með öllum lofgjörðunum og löstunum þar á móti. En við það að ný ríkistjórn tók við, snerist þetta nánast í hring. Þar sem fylgismenn hennar hafa mært óspart hinar ýmsu gjörðir sinna fylgismanna og nær sama hverjar þær eru. Enn þegja stundum ef þeir ekki eru ánægðir með eitthvað, eða ef svo virðist sem loforðin er ekki farið eftir. En mjög líkt gerðist, það sama þó hinum megin hafi verið þegar að síðasta ríkistjórn var við völd.

 

Ég hugsa til þess hversu mörg tækifæri fyrir þjóðina tapast með þessu því það skerðir möguleika fólks á að vinna saman. Ég velti því fyrir mér hvenær okkur hugnast að sjá að við erum bara manneskjur sem viljum eiga okkur tækifæri í lífinu. Tækifæri til að fá að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða. En frumþörfin er jú sú að allir eiga að geta haft heimili, hafi nóg að borða og geti keypt hin nauðsynlegustu föt á fjölskyldu sína.

 

Að standa utan við öll hugtök stjórnmálanna eins og vinstri, miðju eða hægri hefur gefið mér tækifæri til að sjá hlutina með opnum huga og ég hef tekið eftir því sérstaklega hversu gott er að sjá hlutina utanfrá. Ég hef líka tekið eftir því hvað sumir hafa haft rétt fyrir sér alveg sama svo hvort og hvaðan svo sem skoðanir þeirra koma út úr pólitísku flórunni og jafnt eins frá þeim sem fylgja ekki neinum flokk að málum. Það þarf ekki til flokka til að vinna manneskjum framgang. Það sama virkar ef fólk hefur rangt fyrir sér.

Eitt hef ég tekið eftir að sama hvaða ríkistjórn er við völd, hvað það hefur það lítið breytt stöðu fólks. Að langmestu til sama staða, alveg sama hvað virðist eiga að gera. Þeir ríkustu verða ríkari og þeir fátæku enn fátækari. Himinn og haf hefur verið á milli þeirra tekjuhæstu og þeirra tekjulægstu sem mun því miður lítið breytast nema sérstaklega verði tekið á þeim málum. Dugir ekki til að rétta þar in einhverja ölmusu. Frumskilyrðin er að breyta kerfinu og gera það sanngjarnt. Stundum gleyma sumir sem hafa það gott þeim hinum sem hafa það síður og sumir jafnvel hugsa ekkert til þess eða er alveg sama.

 

Á árinu 2013 var ég sérstaklega aktífur á facebook. Eignaðist þónokkra ágætist vini þar en tapaði örfáum á móti. Sem er bara leiðinlegt því fólk á að geta tjáð sig með skoðanir sínar án þess að lenda í einhverjum rifrildum og/eða árásum við það. Ég vellti því fyrir mér hvað þarf til þess að fólk geti borið virðingu fyrir hvort öðru, án þess að bregðast við með því að neita öðrum að hafa skoðanir.


Á samskiptavefnum facebook hef ég hugsað um að tjá mig á jákvæðan máta og að hafa samskipti mín á þann veg að vera án ávirðinga eða árása á aðra. Og ég hef átt mjög ánægjulegar stundir með facebookvinum sem hafa komið fram með jákvæð, góð og hjartanleg atriði fyrir fólk að fá að sjá og velja sér úr. Ég vona svo hjartanlega að fá að tjá mig með oft sterkar skoðanir mínar án þess að viðbrögðin við þeim verði á einhvern hátt neikvæð. Eða eins og það að slá mig af sem vin þess.

 

Í byrjun desember gerðist sá ánægjulegi atburður að alþingi vottaði jákvæðnina með því að stofna óformlegt félag um jákvæðni á þinginu. Það vottar jú að þingmenn eru farnir að hugsa á jákvæðan máta. Ég vonast til að þingmenn vinni áfram með þetta félag og setji sér sérstakar reglur til að fara eftir.


Ég hef lengi skrifað um þessi jákvæðu atriði og meira að segja sent frá mér lista fyrir alþingismenn sem hægt væri að fara eftir eða hafa til umhugsunar. Því varð þetta ákveðin og góð tilfynning fyrir mig og kannski pínu sigur að þessi hópur varð til. Í framhaldinu setti ég í gang hóp á facebook sem ég nefndi: “Landssamtök Jákvæðra” Þessi hópur er ætlað að fá fólk héðan og þaðan úr þjóðfélaginu að hugsa um þessi mál og vinna áfram með þau.  Ég endurnýjaði listann og setti inn á hópinn.

Árið 2014

Ég strengi mín jákvæðu heit á árinu og vonast eftir því að verja hvetjandi fyrir mig og aðra.

 

Ég stend fyrir mjög vandasamri og erfiðri ákvörðun sem ég þarf að taka á fyrsta ársfjórðungi ársins. En ef af verður vonast ég svo sannarlega að fólk sjái að hún eigi eingöngu að verða til góðs.

Að sjálfsögðu mun ég tjá mig hvarvetna og vinna með innlifun að jákvæðninni hvar sem ég kem því við. Ég vona svo sannarlega að fólk taki vel við. Og sérstaklega verður ánægjulegt að sjá slík atriði frá öðrum, hvaðan svo sem þau koma. Úr huga þeirra að eigin hvötum eða vakningu frá öðrum. Það skal líka viðurkennast að ég verð sérstaklega ánægður ef slíkur hvati hafi orðið til að einhverju leiti af mínu framtaki og jákvæðum hvötum frá mér.

Ég mun vinna áfram að því sem ég get inni í hópnum "Landssamtök Jákvæðra" sem og öðrum hópum sem ég hef stofnað til á facebook eins og "Jákvæðar Hugsanir". Ég mun að sjálfsögðu tjá mig á góðan og jákvæðan máta inni í þessum hópum. Og vonast eftir að eiga ánægjuleg samskipti í þeim. Og að áfram muni koma fullt af góðum, umhugsunarverðum og skemmtilegum statusum í hópunum.

Ég hef lengi talið að tengsl og umhyggja sé hvað sterkast og öflugast innan lítils þjóðfélags og fólk hafi miklu öflugri tækifæri til að vinna saman að því að gera betra þjóðfélag í slíku umhverfi. Þar sem aðrir utanaðkomandi hafi lítil áhrif á ákvarðanir okkar. Ég hef jú alltaf trú á að að tilhneigingin í okkur sé sterkust að sækjast eftir því sem veitir okkur öryggiskennd. Og allir eiga að geta notið þeirra tækifæra sem vinnast með því. Ég sé því ekkert neikvætt við að með þjóðinni sé þjóðerniskennd.


Ég hef líka haft þá trú að þátttaka fólks í lýðræði í slíku umhverfi verði miklu auðveldara ef það sjálft getur fengið að hafa áhrif á. Með tækifæri til að tjá sig og ná fram mögulegum framgangi sinna hugmynda.

Ég vona svo sannarlega að árið 2014 verði okkur öllum íslendingum gott og jákvætt. Hvað mig varðar þá ætla ég að gera mitt að vinna áfram á þeim jákvæðu nótum sem ég hugsa.
Gleðilegt árið 2014 og njótið þess að vera til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband