Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hér eru myndir sem ég tók af mótmælafundi í gær

Hér eru 23 myndir sem ég tók af mótmælafundi í gær.

Smellið á þennan link:

http://hreinn23.blog.is/blog/hreinn23/entry/1195216/


mbl.is Boða mótmæli á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir af mótmælafundi í gær

Skoðið færslu:

http://hreinn23.blog.is/blog/hreinn23/entry/1195216/

Þar sem ég setti inn 23 myndir frá mótmælum í gær 1. Október 2011.

 


mbl.is Verið að þjarma að almenningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja já?

En á að hækka Bensínverðið á almenning. Það fer að verða svo að láglaunafólk hafi alls ekki tök á að eiga og reka Bifreið.

Miklil eru álög á almenning í landinu. Álög vegna fjármálakerfisins sem á að lenda endalaust á fólki. Þetta ætlar engan endi að taka. Við erum svo gjörsamlega búin að fá nóg að allt mun líta út fyrir að þetta endi bara með algjörri byltingu.

Nú þurfum við gott fólk að taka okkur saman og leggja blessuð höfuðin í bleyti og koma með hugmyndir og ráð gegn liðinu. Sjálfur er ég á fullu að skoða minn hug!

Ég tek þó fram að ég er ekki fylgjandi ofbeldi!


mbl.is Hækka skatta á bensín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Okkar Ísland - fólksins

Ég hef lengi sagt það! Ísland er "Okkar fólksins" en ekki bankanna, né lífeyrissjóðana, né alþingis, né alþingismanna, né ríkistjórnar.

 

tilbuid2.jpg

 










 
 
 
Ég var á þessum mótmælafundi. Ég get hvergi neitt séð að hér hafi verið neinn skríll á ferð! Veit ekki til þess að neinn hafi skaðast þó eggjum og salernispappír hafi verið kastað. Síðan voru haldnar ágætis ræður. Og þar á meðal tók til máls hann Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness. Var hann með mjög góða ræðu þar sem hann kom vel inn á ýmiss atriði eins og tölur vegna Lífeyrissjóðana sem og Bankana. Einnig talaði hann um svikin loforð stjórnmálamanna um að fella niður verðtrygginguna.
 
Áfram Ísland. Áfram fólkið í landinu.  Losum okkur við hyskið af þinginu. Tökum til í landinu. 
 
LÁTUM EKKI FRAMAPOT EINSTAKRA EINSTAKLINGA DREPA NIÐUR Í OKKUR!

 


mbl.is Eggjum kastað í þingmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er ég sammála!

Ég er hjartanlega sammála núna honum Sigmundi. Þó ekki gerist það nú oft að undanförnu að ég sé styðji við einhvern íslenskan stjórnmálamannWink Vonast eftir því að þeir leggi nú fyrir þingið aðdraga þetta til baka!

Í mínum huga þarf þó að fresta þessu for-ever og við íslendingar tækjum til á okkar landi. En við eigum miklu fleiri tækifæri til þess en innan þessa ESB sambands.

Nú hafa stjórnmálamenn talað fjálglega (síðast í gær á ÍNN sá ég Sigmund Erni) um að við íslendingar ættum að vera með í alþjóðasamfélagi. 

En hvernig alþjóðasamfélagi ættum við íslendingar að vera í? Á þann hátt að ganga í sérstakt samfélag sem er byggt á yfirstjórn risa ríkja eins og Þjóðverja og Frakka? Þar sem við þurfum að gangast undir sér reglur sem þeir vilja að við setjum?

Eða samfélag þar sem hver þjóð heldur sínum eigin rétti, jafnt viðskiptalegum sem öðrum og sinni sérstöðu til að knýja sig áfram? Er það ekki rétturinn okkar íslendinga?

Er ekki munur þar á?

Athugið þetta! Við íslendingar erum þegar í alþjóðasamfélagi sem snýst um heild þjóða. Samstöðu samfélagi. Allt annað tal er bara bull og kjaftæði. Ætlað til að rugla fólk í ríminu.

 

 


mbl.is Vill fresta viðræðum í 18-24 mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og svo, og svo?

Þó karlanir hafi búið þetta til þá tóku konunar þegjandi þátt í því!

Og við ætlum ekkert að læra af því.

Ég spyr mig, hversvegna? Og fæ þau svör meðal annars að það hljóti bara að vera að stjórnmálamenn tóku þátt í bólunni og GERA ÞAÐ ENN! Virðist svo vera að það skipti engu máli úr hvaða flokki fjórflokksins þetta fólk kemur.

Eins og við vitum þá byggjast allar aðgerðir ríkistjórnar á að bjarga gjörónýtu fjármálakerfi. Í stað þess að byggja á getu almennings í landinu til að reisa landið úr öskustónni sem þetta lið hefur komið okkur í. 

Stjórnmálamenn halda áfram að berja hausnum í steininn. Og þora ekki að taka á málum öðruvísi.

Áfram íslendingar! Segjum stjórnmálamönnum á Íslandi upp störfum. Mætum öll á laugardaginn og látum skoðanir okkar hressilega í ljós!


mbl.is Bankahrunið skapað af körlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirlýsingagleðin allsráðandi?

Ég velti því fyrir mér hvort að forseti vor, Hr. Ólafur Ragnar hafi sagt þessi orð til að gera tilraun til að dempa andstæðar raddir Samfylkingar og VG fólks gegn sér. Semja frið?

 

>Ólafur Ragnar sagði að það sem hefði skipt máli fyrir endurreisn Íslands væri að stofnaðir hefðu verið nýir bankar og almenningur í landinu hefði ekki verið gerður ábyrgur fyrir skuldum einkabankanna.

Ha? Veit forsetinn ekki að með því að stofna nýja banka og bjarga bönkunum var almenningur einmitt gerður ábyrgur fyrir skuldunum. Einmitt og meðal annars vegna þess að ekki er búið að gera gangskör í að bjarga heimilunum sem og vegna sí-aukin gjaldþrot fólks. 

Ég þakkaði forsetanum eins og svo margir aðrir að fá að kjósa um Icesave. En ekki er ég sammála honum í þessu. Og er ég viss um að margir aðrir eru það ekki. Í framhaldinu velti ég því fyrir mér hversu meðvitaður hann er um ástandið á Íslandi?


mbl.is Stuðluðu að vexti eftir kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkastuðningur

>en lítið sé gert til að bæta framleiðni og samkeppnishæfni, tryggja sjálfbæra notkun auðlinda eða hjálpa bændum að takast á við áhættu.

Það er fyrir alvöru kominn tími til að setja í gang nýjar leiðir á sjálfbæra þróun! Við eigum fullt af auðlindum og mannauð til að nýta þær. Hjá okkur íslendingum sjálfum eru kraftanir að byggja upp mannsæmandi þjóðfélag. Það lyggur í gegnum undirbúningi að sjálfbærni þar sem mannvitið og verksvitið yrði notað til að setja í gang eflingu á annari notkun af auðlindum okkar en orku og virkjanir. En með aðkomu að slíkum verkum þarf að koma fólk sem vill vinna að framgangi án þeirrar hugsunar að allt sem setja þurfi í gang þurfi að græða á og gangsetningin fari í vasa fárra afætna þjóðfélagsins.

Svo er fyrir alvöru kominnn tími til að snúa þróuninni við varðandi fækkunum undanfarinna ára af bóndabæjunum.

Það væri vel hægt að setja í gang sérstök atriði þar um. Þess má geta að ég sjálfur er fullur af hugmyndum í þessa veru.


mbl.is Stuðningur við landbúnað minnkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blogg-stuttlur

Þegar að ég er ekki að blogga um þjóðmálin þá mun ég stinga hér inn einni og einni stuttlu eða smá færslum með ljóðum og erindum héðan og þaðan.

Bæði eigin verk sem og verk íslenskra og enskra kvæðamanna. 

Mér finnst alveg óttalega leiðinlegt og ljótt að sjá bloggið mitt dautt nokkra daga í einu. En ég mun að sjálfsögðu láta mig þjóðmálin varða og blogga fast um skoðanir mínar. Enda tel ég mig hafa vel til málana að leggja.

**********

Úr Hávamálum:

Hrörnar þöll

sér er stendur þorpi á.

Hlýr-at henni börkur né barr.

Svo er maður

sá er manngi ann.

Hvað skal hann lengi lifa?

 

 


Hver eru skilaboðin?

Ef skoðað er þá sést að aðeins 1% munur er á þeim eru óánægð með störf ríkistjórnar og þeim sem eru óánægðir með störf stjórnarandstöðunnar. 64,1 % á móti 63,1 %.

Eru ekki skilaboðin þau að þjóðin er almennt óánægt með stjórnmálamenn á Íslandi? Svo eru tillögur stjórnlagaráðsins að auka þingræðið. Sem eru greinilega út úr korti við þau skilaboð sem almenningur er að gefa.

En hvað er það sem almenningur er óánægður með störf ríkistjórnar?

Það skín út að það er megn óánægja með að ríkistjórn skuli hafa kosið að bjarga bönkunum og fjármálamönnunum í ónýtu fjármálakerfi. Í stað þess að forgangsraða í það að takast á við vanda heimilanna.

Það skín í gegn að svo virðist sem enginn stjórnmálamaður hafi þor í að takast á við kröfur þjóðarinnar að taka verðtrygginguna í burt.

Það skín í gegn að staða margra heimila er þannig að mjög margir eiga í miklum vanda með að borga af fasteignalánum og mjög margir hafa þurft hvað eftir annað að leita aðstoðar sem svo gagnast ekki vegna þess að engu á að breyta í þessu stórgallaða fasteignakerfi.

Svo mætti áfram telja.

En hvað vill stjórnarandstaðan ef hún kæmist til valda? Eins og við almenningur höfum heyrt á öldum ljósvakans þá tala þeir um að það þurfi að setja í gang ný atvinnutækifæri út um allt land. En við þau verkefni myndu fjármálamennir og bankanir spila með og reyna að græða á framkvæmdum þeirra.

Ég sé ekki fyrir mér að neinu verði breytt í kerfinu. Því miður er það hrein staðreind að algjört getuleysi stjórnmálamanna er við að takast á við vanda og gera gangskör í að breyta kerfinu.

Já því miður. Langflest okkar eru orðin langþreytt á stjórnmálamönnum á Íslandi og erum að kalla eftir einhverju algjörlega nýju!

Ég sé það fyrir mér að heimurinn muni breytast mikið á næstu árum og ég vonast svo sannarlega eftir því að mannfólkið hafi vit á að losa sig við afætur þjóðfélagana. Það er augljóst að það er mikil vakning meðal fólks út um allan heim eins og sést hefur undanfarna daga af mótmælum víðast hvar.

Það er vitundarvakning í gangi og við íslendingar þurfum að taka okkur saman að vera amk. meðal þeirra fyrstu sem þora að breyta fyrir alvöru!

 

 


mbl.is Megn óánægja með stjórnmálin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband